Sammála Helgi Jóns á fyllilega skilið að vera með í þessari umræðu. Og þar sem ég lærði hjá honum get ég fullyrt að hann er ekki verri kostur en aðrir flugskólar á Íslandi.
Í augnablikinu, þegar 14 hafa tekið þátt í þessari könnun, lítur út fyrir að 50% flugmanna kíki ekki alltaf í bensíntankinn fyrir flug. Og hvað á hugi.is/flug að snúast um annað en flugmenn???
Ég vil endilega koma því á framfæri að það liggja eitthvað í kring um 200 milljónir einungis í brautum og mannvirkjum á Selfossflugvelli og þá er ekki talin með sjálfboðavinna meðlima Flugklúbbs Selfoss. Það er vægast sagt sorglegt að sjá þessu öllu sópað í burtu eftir 30 ára uppbyggingarstarf og án nokkurra bóta.
Ég er hjartanlega sammála, það væri gaman að fá fleiri tölublöð af þessu ágæta tímariti. Ég er viss um að það eru fleiri sem taka í sama streng og bíða spenntir. Um að gera að rukka fyrir blaðið til að létta undir með útgáfunni.
Sælir allir saman. Ég vitna í davidjons hérna adeins ofar: ,,Hraði tengist stolli ekkert, hægt er að stolla flugvél á hvaða hraða sem er, eina sem skiptir máli er áfallshornið.“ Er þetta rétt? Er ”stallspeed" þá bara einhver misskilningur?
Til að byrja með vil ég óska greinarhöfundi til hamingju með vinsældirnar og þessa miklu lukku sem greinin hefur gert. En að hækka aldurinn í 17 ár er alveg fáránlegt. Þegar ungir menn eru orðnir þetta gamlir fá þeir bílpróf og hugsa sig ekki tvisvar um þegar valið er á milli bíls skellinöðru. Einnig eru skellinöðruréttindin góður undirbúningur fyrir umferðina, og akstri þyngri bifhjóla. Þannig að ef skellinöðrur hyrfu af götunum held ég að slysum myndi fjölga á stóru hjólunum. En rétt er að...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..