Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

pudenda
pudenda Notandi frá fornöld 0 stig

Re: Hvað finnst ykkur..?!

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ég verð að taka undir það með þér Arasaka að þessi geggjaða útlitsdýrkun í samfélaginu hjá okkur er gengin út fyrir öll mörk. Við erum ekki öll eins af Guði gerð (sem betur fer) og það er lítið hægt að gera við því annað en að ná sáttum við sjálfan sig og það sem er ekki eins og hjá Siggu í næsta húsi á maður bara að vera glaður með að hafa því það er þá manns eigið einkenni. Það eru svo öfgakennd skilaboðin sem otuð eru að okkur dags daglega, svo er það skrýtið að allt fari að snúast um...

Re: Öll von úti???

í Rómantík fyrir 22 árum
Ég var að renna yfir sendinguna þína sem og þau viðbrögð sem þú hefur fengið og það er eitthvað Attertude í gangi. Það er eins og þeir sem hafa sent þér heillaráð hafi brennt sig illa í samskiptum sínum við hitt kynið. Það er ekki hægt að ráðleggja neinum hvað viðkomandi á að gera í þessum blessuðu ástarmálum því hver er sinnar gæfusmiður jafnt í þessum sem og öllu öðru sem við tökum okkur fyrir hendur í lífinu. Það er greinilega kergja í gangi þarna hjá þér sem og þessari stelpu og það er...

Re: Hvað er rómantík??

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Rómantík er eitthvað sem hver og einn skapar hverju sinni með þeim einstakling sem viðkomandi elskar. Rómantík er ekki einhver einn ákveðin atburður eða aðgerð heldur er það eitthvað sem að fólk skapar með sér. Rómantík er huglæg og út frá henni skapast svo kannski aðstaða sem hægt er að segja að sé rómantísk eins og t.d. að vera út í rigningu með þeim sem þú elskar. Einstaklingar geta átt rómantík með sjálfum sér en að sjálfsögðu er það sterkara þegar tveir deila með sér rómantíkinni. Mér...

Re: Ástin

í Rómantík fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ástsjúka Sabrina! Það er ekkert í lífinu sem er auðvelt. Stundum þarf maður að gera sig að fífli við að fá svör við einhverju eða bara þegar maður gerir eitthvað í daglega lífinu. Hvað er svo slæmt við það að roðna í návist einhvers sem maður ber tilfinningar til, það er ekkert að því. Ég held að þér sé alvara að spyrja hann út í það hvort hann beri einhverjar tilfinningar til þín. Kannski er hann alveg á sama máli og þú, að vera skotin í þér en þorir ekki að láta það í ljós og spyrja þig...

Re: Blind date

í Rómantík fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Blind date!!!! Að fara á blint stefnumót geta verið alveg frábær og þau geta líka verið algjör martröð og stórslys ef út í það er farið. Ef það er einhver þarna úti sem langar að prufa þá mæli ég með því að allir skella sér út á Blind date.

Re: Hvað á ég að gera!

í Rómantík fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég segi “Go girl”. Láttu vaða og farðu og spjallaðu við félagann. Hvað gæti svo sem gerst við það. Hann bítur ekki, er það?! Maður á að láta vaða því annars gerist ekkert hjá manni í lífinu. Auk þess er lífið til þess að lifa ekki að velta sér upp úr smámunum. Hver veit nema hann sé meira en lítið til í að fara á stefnumót með þér. Láttu vaða stelpa. Gangi þér vel! Pudenda

Re: Hvað er rómantík?

í Rómantík fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég hef ákveðnar skoðanir í sambandi við það “Hvað er rómantík”. Ég tel að rómantík er eitthvað sem tveir einstaklingar sem lifa saman hvort sem það er í gagnkyn-eða samkynhneigðu sambandi skapa saman og eiga saman. Það er hægt að líka rómantík saman við garð með alls konar plöntum í. Maður byrjar að reita arfa, setja niður plöntur af öllum toga, slá og vökva sem sagt að rækta garðinn sinn. Það er það nákvæmlega sama og maður gerir í sambandi við aðra manneskju þ.e. að rækta sitt samband eins...

Re: Hrifin af besta vini mínum

í Rómantík fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þetta er erfið staða sem þú hefur komið þér í en eins og svo oft áður er sannleikurinn sagna bestur. Ef hann er eins góður vinur og þú segir hann vera þá skilur hann þig. Ef hann er hreinskilinn og samkvæmur sjálfum sér þá segir hann þér hvað honum finnst um þetta og þá þarftu líka að vera tilbúin til að taka á móti því sem hann hefur að segja um þetta hvort sem það er jákvætt fyrir þig eða neikvætt. Og ef hann er með réttu ráði þá kemur þetta ekki til með að skaða vináttu ykkar. Gangi þér vel!

Re: bREYTING VANDAMÁ

í Rómantík fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég spyr hvers vegna í ósköpunum ertu í sambandi sem þú/þið hafið ákveðið að halda leyndu?! Leynt samband og enginn neisti! Þetta boðar ekki gott. Heilræði til þín: slíttu þessu sambandi STRAX, þið getið verið vinir en til hvers?! Þetta er eitthvað hvolpahjal í þér. Leitaðu á önnur mið það er nóg af dömum í sjónum.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok