Ég er í smá vandræðum.. Málið er að ég hef gert þau miklu mistök að verða hrifin af einum af bestu vinum mínum. Ég veit ekkert hvað ég á að gera því ég verð alltaf meira og meira hrifin af honum eftir því sem ég eyði meiri tíma með honum. Eina lausnin sem ég sé er að hætta að umgangast hann en ég vil það alls ekki því hann er rosalega góður vinur minn og við erum búin að þekkjast mjög lengi. Það erfiða við þetta allt saman er að við tölum saman um allt og það er ekki gaman að hlusta á hann tala stöðugt um stelpuna sem hann er hrifinn af. Ég er eini trúnaðarvinur hans og þess vegna veit ég allt um hans tilfinningamál. Ég held að hann gruni hvernig mér líður þó svo að ég hafi ekki sagt honum það. Þetta er alveg að fara með mig því það snýst allt um hann, ég hugsa varla um annað. Ef einhver er með góð ráð handa mér endilega látið í ykkur heyra. Takk takk :)
If you can't convince them, confuse them.