Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

prinsessan91
prinsessan91 Notandi síðan fyrir 19 árum, 2 mánuðum 33 ára kvenmaður
90 stig
Áhugamál: Myndlist, Smásögur, Fuglar, Húmor
(\_/)

21 árs söngkona, 101 Rvk! (1 álit)

í Jazz og blús fyrir 12 árum, 4 mánuðum
Hæhæ ég er 21 árs stelpa núna í janúar. Ég hef mikinn áhuga á allskonar tónlist og elska að syngja fyrir sjálfa mig og aðra. Mig langar að komast inn í hljómsveit, hvort sem það er raftónlist, pönk, jazz, blús, indí eða popp. Ég veit ekki alveg hvernig maður á að lýsa röddinni, en finnst ég hafa svoldið svipaða rödd og Imogen Heap, kannski aðeins hærri. Langar bara að fá tækifæri til að koma og prufa taka þátt, er ekki hörundsár og ekkert mál þótt röddin mín henti ekki fyrir það sem er verið...

21 árs söngkona, 101 Rvk ! (0 álit)

í Raftónlist fyrir 12 árum, 4 mánuðum
Hæhæ ég er 21 árs stelpa núna í janúar. Ég hef mikinn áhuga á allskonar tónlist og elska að syngja fyrir sjálfa mig og aðra. Mig langar að komast inn í hljómsveit, hvort sem það er raftónlist, pönk, jazz, blús, indí eða popp. Ég veit ekki alveg hvernig maður á að lýsa röddinni, en finnst ég hafa svoldið svipaða rödd og Imogen Heap, kannski aðeins hærri. Langar bara að fá tækifæri til að koma og prufa taka þátt, er ekki hörundsár og ekkert mál þótt röddin mín henti ekki fyrir það sem er verið...

Veit einhver hvaða leik ég er að tala um? (3 álit)

í Tölvuleikir fyrir 12 árum, 9 mánuðum
Hæhæ Hugarar. Ég er að verða vitlaus að vita ekki nafnið á þessum leik sem ég spilaði þegar ég var 10-12 ára gömul. Þetta er svona mjög friendly og rólegur leikur, barnalegur og einfaldur. Þetta er 1player leikur og það er einn óvinur. Liðið sem maður spilar eru svona litlir, feitir sköllóttir kallar sem eru allir eins nema í mismunandi lituðum smekkbuxum eftir því hvað þeir gera í leiknum. Óvinirnir eru allir með skegg og í bláum fötum. Markmiðið er að stækka sitt lið og ráðast svo á hitt...

spurning um köttinn minn og lítinn kettling heimafyrir. (6 álit)

í Kettir fyrir 14 árum, 11 mánuðum
ég var að velta fyrir hvort það sé eðlilegt að kötturinn minn klóri sér mikið. Hann er ekkert að allann daginn en mér finnst hann samt klóra sér svo óhóflega, ég hef samt ekki séð neinar pöddur eða slíkt í honum, enda algjör snyrtipinni. Ætti ég að fara með hann í skoðun til dýra og láta tékka á lús eða slíku? auk þess finnst mér hann oft uppþembdur og hann prumpar svoldið. er það eðlilegt ? svo er lítill kettlingur hérna heima sem fæddist með beyglaða framlöpp, ss hún virðist vera brotin og...

góð síða ;) (2 álit)

í Grafísk hönnun fyrir 18 árum
http://www.photoshoppid.tk/ langaði bara að deila þessari síðu með þeim sem ekki af henni vita. ágætis síða ;)

svikul vinátta. (20 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég sat hérna ein í fjörunni og týndi fallegar skeljar og söng mín endalausu lög….aðeins 11 ára gömul. Hún kom og sagði fallega “komdu með mér og ég skal vera vinur þinn”. ég gekk á eftir henni, en svo við hlið hennar….við hlógum saman og lífið var yndislegt. Ég gekk hraðar, ég gekk fyrir framan hana og ég sá mannveru úr fjarska. Hún nálgaðist, hún sagði við mig “komdu með mér og ég skal vera vinur þinn” ég leit fyrir aftan mig….þarna sat hún á stórum steini og horfði til mín, tárin glömpuðu...

lol (4 álit)

í Húmor fyrir 18 árum, 8 mánuðum
man or woman ?

Einn góður hehe (5 álit)

í Húmor fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Dag einn var maður sem hafði fengið nóg af borgaralífinu. Hann ákvað því að flytja í gamlan kofa á háu fjalli, því þar fengi hann sko frið. 3 árum síðar var bankað á dyrnar í kofanum gamla þar sem maðurinn átti nú heima. Hann fór til dyra og þar fyrir utan stóð annar maður og sagðist koma hinumegin frá fjallinu og ætti þar sjálfur ágætis kofa. Þeir fóru nú að tala saman og allt milli himins og jarðar þar til aðkomumaðurinn segjir: “heyrðu, á morgun klukkan 12 á hádegi verður partý hjá mér !”...

Morguninn. (2 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 9 mánuðum
þetta er fyrsta sagan mín hérna, og ég er ekkert viss um að hún verði mjög góð eða löng. Hún er byggð á sönnum atburðum og sögð frá mínu sjónarhorni. Vona að ykkur líki hún bara. Við sátum við eldhúsborðið og borðuðum saman. Mamma stóð við vaskinn döpur, ég vissi aldrei af hverju hún var svona oft döpur…hurðinn opnaðist…ég heyrði röddina hans, röddina sem ég man ekki lengur en ég hata samt meira en allt annað. Raddirnar hækkuðu, þær öskruðu, mamma öskraði. Mér var illt, ég sagði við þær….þær...

Dísan mín.. (1 álit)

í Fuglar fyrir 19 árum
dúlla hehe…

Dísarpáfagaukurinn minn (8 álit)

í Fuglar fyrir 19 árum
Ég er 14 ára stelpa og á dísarpáfagauks sem heitir Ásta. Ásta er handmötuð frá Tjörva og er hún mjög góð og blíð. Ég fékk hana frá stelpu í reykjarvík þegar hún var rúmlega 1 árs og hún var mjög fljót að byrja að treysta mér. núna er ég búin að eiga hana í 1 ár og það er búið að vera einstaklega skemmtilegt og frábær félagsskapur. Þegar við kynntumst fyrst var hún svolítið stygg og vildi auðvitað ekki leyfa mér að klappa sér og snerta alls staðar, en núna treystir hún mér mjög vel og leyfir...

Hesturinn litli.. (7 álit)

í Húmor fyrir 19 árum
Eitt kvöld kom maður inná á bar og hafði þar mjög lítinn hest með sér. Barþjóninn verður þá mjög forvitinn og byrjar að spurja út í þennan hest sem var rétt 6 cm á hæð eða svo. Barþjóninn spyr: “heyrðu vá hvar fékkstu eiginlega þennan hest. Hann er alveg geðveikt flottur, þú verður að segja mér hvar þú fékkst hann…?” Í fyrstu vill maðurinn ekki segja hvar hann fékk hann og færist mikið undan, þar til barþjóninn gefst upp. Næstu kvöld heldur maðurinn áfram að koma með þennan einkennilega hest...

duglegri.... (1 álit)

í Fuglar fyrir 19 árum, 1 mánuði
þið sem eruð á þessu áhugamáli, finnst þið ættuð að vera duglegri með að reyna að halda þessu spjalli lifandi…. það er kannski hægt að koma með einhverjar fréttir eða eikkað segja frá fuglinum sínum ða bara eikkað, þótt það sé ómerkilegt… bara sorry en þetta er alveg steindautt hérna…

dísan mín... (5 álit)

í Fuglar fyrir 19 árum, 2 mánuðum
þetta er Ásta dísarfuglinn minn..
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok