Júbb ég er ennþá í skólanum og sit einmitt hérna núna. Já ég er í háskóla og síðasti prófdagur er 20 júní. Síðasti kennsludagur var 6 júní en við erum samt hérna í skólanum þangað til að við förum í próf. T.d núna hvítasunnudag þá er ég í skólanum…eins og flestir í mínum bekk núna. EN það er ekki sanngjarnt að bera þetta saman við venjulegt menntaskólanám því þetta er allt annað form á námi. Ég er t.d með mitt pláss hérna í stofunni þarn sem ég er með tölvuna mína (ekki ferðavél) og allar...
þessi önn hjá mér sem er núna (búinn hjá flestum) Byrjaði 13 janúar og er ekki búinn fyrr en 20 júní. Þakkaðu bara fyrir. Og svo byrjar skólinn aftur 28 júlí…og er búinn 22 des. Þannig að halt þú bara áfram að grenja á meðan að ég sit ennþá í skólanum. p.s ég er í skóla í dk þar sem að námsárið virðist vera soldið lengra en á íslandi. Og ekki fara að grenja ég var bara að meika point..:)
Ég er oft með augun opin þegar að ég fer í ljós…..það hefur ekki skaðað mig hingað til, þó að ég geti alveg ímyndað mér að það sé ekki hollt fyrir augun. Ég hef ekki fengið rafsuðublindu en það leynir sér ekkert ef þú færð hana. Félagi minn var svo illt haldin af þessu einusinni að hann þurfti að fara með sjúkraflugi af þjóðhátíð í vestmannaeyjum. Þetta er víst eins og þú sért með augun full af sandi og eins og þú sért að nudda þau stanslaust.

life realy suck…. belive me i know.. (ég sjálfur)
Það er alveg rétt að Range Rover er með mjög góða og mikla fjöðrun, það tekur það enginn frá þeim. En mín reynsla af Range Rover (reyndar ekki mikil) er sú að í almennum akstri þá er þetta eins og að vera á kókflösku út í ballarhafi (kannski soldið ýkt) en ég man að pabbi gamli átti R.R og það var alltaf hálfgerð bátatilfinning sem fyldi því að keyra hann. Ég veit ekki hvort þú hefur mikla eða litla reynslu af breytingum eða af jeppamennsku en mín reynsla er sú að hlusta á menn sem hafa...
hefurðu heyrt talað um ESAB læsingar? það er gert þannig að drifið er soðið fast með ESAB suðuvél. Einnig má notast við Micatronic,Migg og fleiri gerðir suðavéla. Þetta virkar ekki ósvipað og Nospin nema hvað að það er hægt að beygja þegar að Nospin er notað. p.s ef þú færð þér nospin þá skaltu halda fast í stýrið þegar að súkkan endaskýst út úr hringtorgi. Láttu mig þekkja það. Það er eins og einhver hafi keyrt á bílin hjá þér.

life realy suck…. belive me i know.. (ég sjálfur)
Ég vann sem dyravörður fyrir nokkrum árum og ég er alveg sammála þér. Fólk verður alveg afspyrnu leiðinlegt þegar það opnar bjór eða flösku. Ég vann sem dyravörður í 2-3 ár og ég er ekki sammála þér um að menn séu alltaf að slást. Ég held að ég geti talið á fingrum annarar handar hve oft ég lenti í alvöru slagsmálum þó að ég hafi verið að vinnna hverja helgi í 12 mánuði eitt árið, en það er misjafnt á milli staða. En hinsvegar þessar setningar eins og “ég þekki Palla” “come on mér er kalt”...
Mazda 323 1,3…. man ekki BroncoII 2,8L…. 140 BMW 728 IA 2,8L 140 (minnir mig) Suzuki Fox 1,8L. (BMW)…120 (minnir mig líka) Carina E 2,0L…. 133

life realy suck…. belive me i know.. (ég sjálfur)
svefn og heilsa………….en það kostar ekki undir 100þús (kannski 80-90) en hey…hugaðu hvað þú ert að kaupa…þú ert að kaupa þér góðan svefn og ef þú ert að kaupa þér rúm þá skaltu eyða smá pening í það. Ég sé ekki eftir að hafa keypt mér rúm á 100 kall. Eina sem klikkaði að fyrrverandi tók rúmmið þegar að við hættum saman. :(

life realy suck…. belive me i know.. (ég sjálfur)
er einhver með á hreinu hérna hvað 1 Tomma eru margir millimetar?? mig minnir endilega að tomman sé 254…..eitthvað meira…. Út frá því er svo ekki mikið mál að reikna síðan hvað ein rúmtomma er mikið tomma*tomma*tomma= rúmtomma * 350 = vélarstærð
Ég er með skylight filter á linsunni hjá mér sem ég keypti á sínum tíma eingöngu til að hlífa linsunni,enda var mikið flakk á mér á fjöllum og annað. En ég komst svo að því að skylight filterinn eyðir út leiðinlega bláum lit sem kemur stundum á myndir sem teknar eru á jöklum og í snjó. Þannig að já ég er alltaf með fillterinn minn á sem ég keypti á einmitt c.a 1200 kall. Ég er nefninlega búinn að rústa einni linsu og þá var vélin mín viku gömul :( En fillter hefði varlað bjargað henni í það skiptið.
já ég rippa þetta allt beint inná c-drifið og svo er það sett þaðan inná playlistann. En ég geri það í gegnum Windows mediaplayer og set það síðan inn á media library.

life realy suck…. belive me i know.. (ég sjálfur)
ha ha ha ha ha ha ha þetta passar einmitt vel við undirskriftina þína “ef ég get það ekki, getur enginn það” ha ha ha

life realy suck…. belive me i know.. (ég sjálfur)
er þessi díselmótor ekki alltof þungur?? Þá þyrfti að breyta t.d fjöðrun. Ég átti langa súkku með BMW 318I og hann svínvirkaði…hann hefi virkað betur ef að ég hefði tekið 35“ undan og sett 33” og kannski sett í hann 5 gíra kassa. Hann var nefninlega 4 gíra með 5:38 hlutföll og komst ekki hraðar en 90 og þá var hann kominn í 4000 rpm og þá var kominn tími á að setja upp Peltor heyrnahlífar með útvarpi :)

life realy suck…. belive me i know.. (ég sjálfur)
ég hef samkvæmt öruggum heimildum að sýninginnn í Hfj verði í mestalagi 20 mín.. 100 mínútna sýning myndi kosta formúgu eða vera mjöööööööög hææææææææægggggggg og leiðinleg…. 100 mínútna sýning myndi kosta svona 10-15 milljónir ef ekki meira..

life realy suck…. belive me i know.. (ég sjálfur)
Besta bók sem ég hef lesið er “Ég lifi” eftir Martin Gray.. segjir frá pólverja sem lifði á ótrúlegan hátt af helför nasista og hvernig honum tókst að sleppa hvað eftir annað. Þetta er ótrúlega saga og ég mæli hiklaust með þessari bók, ég er búinn að lesa hana 2svar.. Hún er soldið þykk en hún er þess virði.
Ég bý þessa dagana í Danmörku þar sem það virðist ekki vera þörf á 3 mánaða sumarfrí.. Ég byrja í skólanum í endaðan júlí og ég er búinn 19 des en það er að vísu vikur “frí” sem heitir verkefna vika.. Og svo byrjar skólinn aftur í byrjun jan og er búinn í byrjun júní. Þetta gfur manni um 6 vikan sumarfrí sem er alveg ágætt því annars þyrfti bara að lengja námið í staðinn. Og þegar að þú ert á námslánu þarftu að fá þér vinnu í fríunum en þú mátt ekki þjéna of mikið því annars skerðast lánin...
Sammála og svo tók hann líka “tears in heaven” sem mér fannst vera algjör óþarfi.. Coverlög finnst mér svona …..ok en það eru bara sum lög sem það er “bannað” að taka eða það er svona óskrifuð regla að taka ekki sum lög eftir aðra T.d tears in heaven og lagið með KK.
Voru ekki til 2 GTI-R bilar á landinu?? veit einvher hvað varð um þá….ég veit að það var svo einn GTI með GTI-R húddi en ég veit að það var til einn svartur og svo var einhver á Selfossi sem flutti inn eitt stykki GTI-R sjálfur….voru þeir ekki 4x4 237 hp eða eitthvað svoleiðis….

life realy suck…. belive me i know.. (ég sjálfur)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..