Já, einmitt. Og það versta er að nú get ég ekki losnað við þennan leiðilega, ljóta Lupin þegar ég les bækurnar. Nú sé ég bara David Thewlis fyrir mér. Arg!! Asnalegu myndir. Þær persónur sem hafa, að mínu mati, komið best úr þessu eru: Dumbledore úr fyrstu og annarri myndinni, Hagrit og Gilderoy Lockhart. Margar aðrar eru bara ónýtar eins og seinni Dumbledore.