Er ekki mikið undir okkur sjálfum komið hvernig við högum jólunum. Ég er t.d. búin að ákveða að taka allt voða rólega og njóta desember í rólegheitum. Ég er búin að vera að föndra með strákunum mínum, búa til jólakort og svoleiðis en geri það allt á mínum hraða og geri ekki meira en ég nenni. Ég er búin að versla flestar gjafir og pakka inn, hef ekki stigið fæti í Kringluna eða Smáralind í ca mánuð, ég er fyrst núna farin að heyra einhver jólalög og hef lítið tekið eftir auglýsingum nema þá...