Ísland er þekkt fyrir það að vera fallegt land. En hvað eru íslendingar þekktir fyrir? Erum við þekktir fyrir að vera alltaf í útrás? Nei. Það sem íslendingar eru helst þekktir fyrir er að eiga ótrúlegan sagnaarf. Það er kraftaverki líkast að svo fátæk og óþróuð þjóð hafi sest niður og skrifað þessar sögur sem eru nú frægar út um allan heim. Fjársjóður íslensku þjóðarinnar felst í bókmennta-og sagnarfi hennar en hann er einmitt allur skrifaður með bókstöfum sem mynda orð, sem mynda...
Vóóó…ég var í ruglinu í gær. Rabat er höfuðborg Marokkó og Casablanca er bara borg í Marokkó. En ég sagði að Casanova væri höfuðborgin og það er ekki einu sinni til borg sem heitir casanova. Til fróðleiks má geta þess að Casanova þýðir Nýja húsið og Casablanca þýðir Hvíta húsið. Skondið. En ég afsaka þessa staðreyndavillu hjá mér. kv.peacock
ok, ég er í MR og uppáhaldsfagið mitt er saga. Hún er dálítið erfið en hún er fáránlega skemmtileg. Fyrsta árið fer bara í að læra um forn-grikki og rómverja. En aðrir skólar fara í þetta sama efni á 3-4 vikum meðan ið tökum allt skólaárið í þetta. Svo maður lærir þetta fáránlega vel. Það er heví töff að geta quotað í cæsar og svona. Stærðfræðin er miklu frekar erfiða fagið í MR myndi ég segja. En auðvitað er þetta mjög einstaklingsbundið. Ég elska sögu og er ekkert svakalega góður í stæ.
Þeir hefðu náttúrlega ekkert til að handtaka þig fyrir. En ef einhver er mjög drukkinn þá geta þeir tekið hann og farið með hann heim eða í öruggt skjól til að láta renna af honum ef þeir halda að hann fari að stofna sér í hættu vegna dómgreindarskort af völdum áfengis. Og já oft þarf að hlýða lögreglumönnum þó þeir handtaki mann ekki. Þeir geta svo handtekið þig fyrir óhlýðni. En skipanir þeirra sem þú hlýddir ekki þurfa samt að vera eftir lögunum.
Já, hann hefði mátt keyra heim á stundinni. En ef ég hefði verið hann þá hefði ég fengið að blása hjá lögreglunni áður en ég færi upp bílinn frekar en að fara upp í bílinn og látin þá blása, því þá má sekta mann.
Tilgangur lögreglunar er að fylgjast með hvort viðmið þjóðfélagsins eru brotin og brot á viðmiðum fylgja oftast viðgjöld. Viðgjöld geta verið neikvæð eða jákvæð, formleg eða óformleg. Lögreglan er mest þekkt fyrir neikvæðu formlegu viðgjöld sín sem eru handtökur og sektun. En það sem þú gerir þér ekki grein fyrir er að lögreglan getur stundum sinnt starfi sínu án þess að beita neikvæðum formlegum viðgjöldum. Hún getur beitt óformlegum neikvæðum viðgjöldum. Þá gefur hún það í skyn með...
Þú setur sama sem merki á milli að brjóta lög og að vera handtekin. Má ég spyrja: -Er maður alltaf handtekin þegar maður keyrir yfir hámarkshraða? Samkvæmt þér þá á alltaf að handtaka fólk sem keyrir yfir hámarkshraða því það er jú að brjóta lögin. Það eru til fleiri neikvæð viðlög hjá lögreglu en að handtaka fólk. Í þessu tilviki unglinganna í Hvalfirði notar hún meira að segja óformleg neikvæð viðlög sem virka, sem er mjög vel að verki staðið. Vertu þú ekki að segja öðrum að vera kurteis...
Að handtaka alla þarna þarna inni hefði verið mikil eyðsla á þínum skattpeningum. Lögreglan hefði þurft að eyða yfir 80 sérpökkuðum blástursrörum fyrir áfengismælitæki á hvern og einn ungling til þess að sanna áfengisdrykkju. Hvað átti lögreglan svo að gera með fleiri en 80 handtekin ungmenni? Ekki neitt. Af hverju væri hún að sinna starfi sínu betur með því að handtaka krakkana? Hún stöðvaði frekari unglingadrykkju með aðgerðum sínum. Var það eitthvað fleira sem hún hefði átt að gera?...
Göngutúrar eru bestu fyrstu deit finnst mér. Og nú er að koma vor svo það er mjög sniðugt að fara í göngutúr. Mikið næði til að spjalla og tækifæri á vægri líkamlegri snertingu, s.s. að leiðast eða að halda utan um hana. Labba einhverja leið þar sem er bekkur á leiðinni þar sem er hægt að setjast niður eða bara henda sér í grasið….þá þarf að vera gott veður.
Ekkert illt meint. Þú sérð það þegar þú skoðar svarið mitt fyrir ofan. Ég er meira að segja alveg sammála þér eins og sést í þessu nýlega svari mínu: http://hugi.is/romantik/threads.php?page=view&contentId=3293725#item3294763 kv.páfuglinn
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..