Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Buffy búinn ... :'( (3 álit)

í Spenna / Drama fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Jæja þá er það búið :'(. Ég var að horfa á síðasta þáttinn af Buffy The Vampire Slayer þ.e.a.s. 22 þáttur í séríu 7. Mig langaði mest að gráta þegar þessi þáttur var búinn vitandi það að það verður aldrei meiri Buffy. Hvað á maður að gera núna þegar þættirnir hafa runnið sitt skeið á enda? Veit einhver um svipaða þætti sem eru í gangi í dag eða eru að fara í gang í haust sem hægt er að horfa á í staðinn? oracius p.s. ég veit að sería 5 af Angel er næsta vetur.

Buffy Bækur? (3 álit)

í Spenna / Drama fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég hef mikinn áhuga á Buffy og þættirnir eru engan veginn nóg fyrir mig. Ég hef því verið að skoða aðra hluti eins og t.d. bækur. Málið er bara að á Amazon.co.uk koma 225 bækur til greina. Þannig að mig langar að spyrja ykkur Buffy aðdáendur hvort þið hafið lesið Buffy bækurnar og ef svo er hvaða bókum mælið þið með og hvaða bækur á maður alls ekki að kaupa. Mér þætti líka gaman að vita hvort einhverjar bækur eru betur skrifaðar en aðrar og hvort einhverjar sögur stangast á við það sem komið...

Season 6 DVD (2 álit)

í Spenna / Drama fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Veit einhver hvenær sería 6 kemur út á DVD? oracius

Af hverju eru vandamál með broddstafi í JAVA (5 álit)

í Forritun fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég er að velta fyrir mér af hverju broddstafir í java koma stundum inn og stundum ekki? Ef einhver hefur svar við þessu vinsamlegast skellið því inn. oracius

Jeet Kune Do (2 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Veit einhver hvort að Jeet Kune Do er kennt á Íslandi? oracius

Sigurrós og C.S.I. (2 álit)

í Sjónvarpsefni fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Þetta er kannski ekki merkileg grein en ég vildi bara benda þeim á það sem ekki sáu C.S.I. að lagið Svefn g englar með Sigurrós var spilað undir þegar Grissom var að skoða sár á líki. Strákarnir Sigurrós eiga alveg prik skilið fyrir þetta afrek. oracius

Exporta maps úr 3dstudio Max 3 (8 álit)

í Half-Life fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Veit einhver hérna hvar er hægt að finna plug-in fyrir 3DSMAX 3 til að exporta maps fyrir CS. oracius

Er GeForce3 peninganna virði? (5 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég er að velta fyrir mér að fara að endurnýja og er kominn með allt í tölvuna nema skjákortið. Ég er búinn að liggja lengi yfir þessu og pæla en ég kemst einhvern veginn ekki að neinni niðurstöðu. Þess vegna var ég að velt fyrir mér hvort einhver hérna hefur reynslu af GeForce3 og sem getur svarað því hvort það sé peninganna virði. oracius

Porsche 944 Turbo kaupa eða ekki? (6 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég var að sjá Porsche 944 sem ég hef mikinn áhuga á að kaupa. Mér datt bara í hug að spyrja ykkur sem hafið vit á bílum hvort það séu góð kaup. Hann er '91 árgerð keyrður 94 þús og er með öllum aukabúnaði sem hægt er að fá og kostar rúmlega eina og hálfa. Vitið þið eitthvað um hvernig svona bílar hafa reynst? oracius

Að vera eða ekki vera? (3 álit)

í Rómantík fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Nú vantar mig ráð. Ég hef verið með stelpu í bekk núna í tvö ár. Ég hélt fyrst að ég væri bara hrifinn af henni en núna get ég ekki hætt að hugsa um hana. Mig dreymir hana meira að segja á nóttunni. Það gerist ekki með manneskju sem maður er “bara” hrifinn af, ég held ég sé ástfanginn af henni. Vandamálið er bara það að hún er með gaur og svo er hún líka ein af mínum betri vinum. Hvað á ég að gera? Finna mér aðra og reyna að gleyma þessari? Segja henni frá því og eiga það á hættu að missa...

Hvernig er best að læra á Linux (6 álit)

í Linux fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég er frekar vel að mér á tölvur en til allrar óhamingju þá kann ég ekki á Linux. Mig langar að vita hvernig er best að læra á það. Hvað af þessum Linux kerfum er best að nota, hvaða bækur eru bestar og hvort það er til einhver almennilegur guide á netinu. Í stuttu máli, þá langar mig að vita allt. oracius
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok