Nú vantar mig ráð. Ég hef verið með stelpu í bekk núna í tvö ár. Ég hélt fyrst að ég væri bara hrifinn af henni en núna get ég ekki hætt að hugsa um hana. Mig dreymir hana meira að segja á nóttunni. Það gerist ekki með manneskju sem maður er “bara” hrifinn af, ég held ég sé ástfanginn af henni. Vandamálið er bara það að hún er með gaur og svo er hún líka ein af mínum betri vinum.

Hvað á ég að gera?
Finna mér aðra og reyna að gleyma þessari?
Segja henni frá því og eiga það á hættu að missa hana sem vin?
Hvað ef hún er hrifinn af mér og hættir með kærastanum sínum og hann verður fúll út í mig?
Ég gæti ekki lifað með það á bakinu að hafa eyðilagt samband.

Sleppiði skítkastinu það tekur óþarfa pláss.

oracius