Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Hvar á maður að leita? (46 álit)

í Rómantík fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Sælt veri fólkið! Það er eitt mál sem ég hef mikið verið að velta fyrir mér. Það er mikið af pörum í kringum mig dags daglega og allt í góðu með það, nema það að ég er ekki hluti af pari. Ég er búinn að gera allt sem mér dettur í hug til að ná mér í kærustu, en það bara er ekki að virka. Ég er búinn að prufa einkamal.is, private.is, speeddater.is, búinn að vera að svipast um í skólanum og svo auðvitað er ég búinn að skoða úrvalið á djamminu (sem er stórlega ofmetið). Ég er frekar vel...

Af hverju endast flest sambönd svona stutt? (27 álit)

í Rómantík fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Þegar ég byrjaði á þessari grein var ég ekki alveg viss um hvernig ég ætlaði að koma þessu frá mér sem mig langar að segja. En ég vona að þið kæru lesendur skiljið hvað ég á við og úr þessu verði jákvæð umræða laus við allt skítkast. Ég er með kenningu um það af hverju mörg sambönd í dag enda með framhjáhaldi eða fara bara einfaldlega í vaskinn eftir mjög stuttan tíma. Ástæðan er að ég held mjög einföld. Við erum einfaldlega orðin uppfull af ranghugmyndum sem hefur verið komið í hausinn á...

Þögnin (19 álit)

í Rómantík fyrir 21 árum
Jæja nú ætla ég að byrja greinina á að alhæfa svolítið. Hvað er með ykkur stelpur af hverju hætti þið að svara símhringingum og sms-um þegar maður segir hvað manni finnst um ykkur? Maður er búinn að hitta stelpuna af og til í kannski tvær vikur þá lætur maður út úr sér hluti eins og “mér finnst þú falleg, skemmtileg og mér líður vel þegar ég er með þér. Mig langar til að eyða meiri tíma með þér”. Ég er alveg hættur að skilja þetta. Ég er búinn að lenda í þessu núna þrisvar. Endilega þið sem...

... slut? ... hvar var Giles? ... Tara? (15 álit)

í Spenna / Drama fyrir 21 árum, 2 mánuðum
** VARÚÐ ** Í ÞESSARI GREIN ERU MAJOR SPOILERAR Í 6.SERÍU AF BUFFY THE VAMPIRE SLAYER ** VARÚÐ ** Ég hef nýlega lokið við að horfa á 6.seríu af Buffy The Vampire Slayer. Mér fannst þessi sería ágæt og tekur á ýmsum málum sem ekki hafa verið tekin fyrir áður (þjófnaður, kynlífssambönd og athyglisskortur svo eitthvað sé nefnt). Eins og þeir vita sem hafa horft á fyrstu 6 seríurnar hafa ástarsambönd Buffy ekki verið endingargóð og kannski góð ástæða fyrir því (Angel má ekki stunda kynlíf og...

Hvað er rómantík? (13 álit)

í Rómantík fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þetta er umræða sem mér hefur alltaf langað að starta hér á Huga.is. Það er þessi flókna en um leið einfalda spurning, “hvað er rómantík?”. Ég er ekki hlynntur þessari hugmynd sem fólk hefur af rómantík. Mörgum finnst rómantík vera, kampavín og jarðaber í baði, með fullt af kertum í kring og hugsanlega rósarblöð stráð á gólfinu. Öðrum finnst sólsetur í karabískahafinu vera rómantík. Þið getið ábyggilega hugsað ykkur fleiri tilvik sem búið er að mata ofan í ykkur með kvikmyndum. Fólki í dag,...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok