Ég hef mikinn áhuga á Buffy og þættirnir eru engan veginn nóg fyrir mig. Ég hef því verið að skoða aðra hluti eins og t.d. bækur. Málið er bara að á Amazon.co.uk koma 225 bækur til greina. Þannig að mig langar að spyrja ykkur Buffy aðdáendur hvort þið hafið lesið Buffy bækurnar og ef svo er hvaða bókum mælið þið með og hvaða bækur á maður alls ekki að kaupa. Mér þætti líka gaman að vita hvort einhverjar bækur eru betur skrifaðar en aðrar og hvort einhverjar sögur stangast á við það sem komið hefur fram í þáttunum. Sömuleiðis hvaða höfundar eru góðir og hverjir hafa líkað verið með í að skrifa þættina. Með fyrirfram þökk,

oracius