Ég veit að þeir voru mjög ósáttir með síðustu spurninguna, þótt þeir beri harm sinn í hljóði. Þeir hefðu átt að fá að vita hversu mörg atriði var ætlast til að þeir teldu upp í þríþrautinni, hingað til hefur það alltaf verið sex atriði (eins og nefnið þrjá leikara og kvikmyndir sem þeir hafa verið í). Hér var beðið eftir 9 atriðum (þremur goðum, þremur hlutum (sem þeir gátu) OG þremur eiginleikum). Sem hreinræktaður MRingur þá finnst mér semsagt að MAingarnir hefðu ekki átt skilið að vinna....