Ég sé að það eru að minnsta kosti þrír sem að hafa áhuga á landskeppninni, og þar sem ég hjálpaði agnar ögn við spurningar þá væri gaman að fá smá “feedback” á því hvernig ykkur fannst prófið, hvaða spurningar voru erfiðar og hvaða spurningar voru fínar, einnig vil ég eindregið minna þá á sem hafa áhuga, þá verður háskóladagurinn einhverntímann síðast í febrúar og þar verð ég að kynna efnafræðina, svo að látið sjá ykkur.