7.kafli. Yfirlið og bækurnar þrjár “Tasy, Tasy vaknaðu,” Tasy heyrði Ron tala fyrir ofan sig, hún opnaði augun ringluð og sá að hún lá á gólfinu í herberginu sínu. Allt snerist í hringi, hún sá tvöfalt er hún spurði hvað hefði eiginlega komið fyrir. Lucas svaraði spyrjandi, “það leið yfir þig, er of heitt hér eða hvað?” Tasy horfði hissa á Lucas, “ég veit það ekki, það varð allt undarlega hljótt, þið þögðuð og svo varð allt svart.” hún var ringluð á svip en reyndi sem hún gat að útskýra...