Geimfarið MRO(hægt að lesa um það í hliðardálkinum á forsíðu áhugamálsins) tók þessa mynd nýlega, af skriðum á Mars. Þarna sést ís og ryk fossa niður hlíðar í grennd við norðurpól plánetunnar.
Geimfarið Dawn, sem má lesa nokkra punkta um á forsíðu áhugamálsins. Það er kannski ekki mikið fyrir augað, en það á vonandi eftir að koma með spennandi rannsóknarniðurstöður í framtíðinni.
Mynd listamanns af því þegar New Horizons geimfarið flýgur hjá Júpíter. Eftir tæpa tvo sólarhringa verður það sem nálægast stærstu plánetu sólkerfisins okkar. New Horizons verður fyrsta geimfarið til að fara til Plútó og Karon. Nokkur ár eru þó þangað til, eða tæpir 3060 dagar.
Mynd af Títan, sem er það stærsta af fjölmörgum tunglum Satúrnusar. Strikin eiga að sýna hvernig ljósið frá stjörnu “bognar” þegar tunglið fer fyrir hana. Títan er með mjög þykkan lofthjúp svo ljósið hverfur hægt. Mynd eftir C.Carreau.
Tók þessa mynd í sumar í rosalegu veðri á Þingvöllum. Fókusinn er ekki alveg einsog ég myndi vilja hafa hann, en það er víst lítið hægt að gera í því núna.
Þetta flúr er eitthvað í líkingu við það sem ég ætla að fá mér við tækifæri (semsagt, þegar ég verð orðin 18). Mitt verður samt aðeins öðruvísi, fínlegra og aðeins lengra jafnvel.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..