Svona á að gera þetta! Ég hef fylgst svolítið með útlendingum á vefnum ræða þetta mál, og enginn virðist vita raunverulega um hvað málið snýst. Þeir heyra bara að Íslendingar séu að slátra hvölum sem séu í útrýmingarhættu. Þeir neita síðan að hlusta á öll rök, þeir hafa bara ákveðið að þeir hafi rétt fyrir sér. Ég efast samt um að þetta hafi teljandi áhrif á ferðamannaiðnaðinn.