Já, sama og fyrir ofan, ég mæli algjörlega með Alkemistanum. Ég hef aldrei lesið neitt í líkingu við þá bók. Glæpur og refsing eftir Fjodor Dostojevskí finnst mér líka frábær, hún er frekar þung en samt spennandi og áhugaverð. Fjallar um ungan og fátækan stúdent í Rússlandi á nítjándu öld, hann er ekki beint heill á geði og er alltaf að reyna að réttlæta morð sem hann framdi fyrir sjálfum sér. Síðan veikist hann og verður enn ruglaðri.