Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Leita að banka

í Fjármál og viðskipti fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það var dregið af reikningnum mínum. Veit ekkert hvað Hlöver er, er það einusinni orð?

Re: Írskt Rokk

í Rokk fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Írsk rokkhljómsveit?

Re: Passa sig á Samfylkingunni/ ÁLVER

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Eyðilegging náttúru Íslands? Þetta er hagkvæm nýting á náttúrunni, ekki eyðilegging. Það skiptir engu máli í sambandi við þetta hvort þú kýst Samfylkinguna eða ekki, Kárahnjúkavirkjun er “búið og gert”. Vinstri grænir eru kannski náttúruverndarsinnar, en það gerir þá ekki að betri ríkisstjórn.

Re: Kvef/hálsbólga/hausverkur

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Verkjatöflur, drekka mikið vatn, og ég myndi reyna að pína í mig þetta te. Annars er kvef ólæknandi sjúkdómur, því miður.

Re: Nýtt á matargerð

í Matargerð fyrir 19 árum, 3 mánuðum
BBCode virkar, ekki html :) [ email = netfang ] titill [ /email ] Góð hugmynd, kannski maður verði með einhverntímann.

Re: Reykingar unglinga í íslensku samfélagi

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Hvað í andskotanum er að þér?

Re: Reykingar unglinga í íslensku samfélagi

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Róleg, ég ruglaðist þá bara. Er enginn asni fyrir það.

Re: þátturinn í dag

í Sápur fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það lítur út fyrir að Mike hafi verið smitaður af HIV, og Janae er viss um að hún er líka með það og sagði Boyd upp, þóttist vera ennþá hrifin af Mike og eitthvað. Boyd lenti í rosalegum vandræðum þegar hún notaði lykilinn hans til að brjótast inn á læknastofuna, og hann komst að því að Janae hefði gert það en er alveg sama. Ned og Stu rifust, Stu reyndi að láta Ned fá einhver innritunarplögg á lestrarnámskeið og í lögregluna, og þá varð Ned reiður og lét Stu “finna til tevatnsins”. Annars...

Re: Hvað er að þessari síðu?

í Hugi fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Hann er að spyrja hvernig maður vesenast eitthvað á msn. Bætt við 1. nóvember 2006 - 09:25 var að spyrja átti þetta að vera.

Re: H&M

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það er hætt á Íslandi, að því ég best veit.

Re: Reykingar unglinga í íslensku samfélagi

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Hvaða rifrildi var ég að “starta”? Þú ert víst með tilhæfulausar ásakanir og árásir. Vinsamlegast haltu þínum skoðunum fyrir þig.

Re: Reykingar unglinga í íslensku samfélagi

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Lestu fimmtu grein notendaskilmála Huga. Viðvörun.

Re: Reykingar unglinga í íslensku samfélagi

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Heyrðu væni, haltu þig á mottunni. Engan kjaft.

Re: Reykingar unglinga í íslensku samfélagi

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Maður blæs fullt af honum út aftur. Og mikið af honum fer í loftið þegar sígarettan sjálf brennir upp.

Re: keypti tunnels

í Tíska & útlit fyrir 19 árum, 3 mánuðum
En er þetta samt ekki vont? Svona fyrstu dagana eftir að maður teygir?

Re: Reykingar unglinga í íslensku samfélagi

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég held það séu meiri líkur á krabbameini og æðasjúkdómum ef maður notar nef- og munntóbak…

Re: Ég er búin að gefast upp..

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ahh, ég vildi að ég gæti gert þetta. Námsleiðinn og áhugaleysið á skólanum er gjörsamlega að drepa mig. Mig langar svo til að hætta í skólanum. En ég bara… get það ekki.

Re: Reykingar unglinga í íslensku samfélagi

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Nei. Það fær bara enginn að vera með einhvern helvítis kjaft við mig.

Re: Reykingar unglinga í íslensku samfélagi

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það andar enginn öllum sígarettureyknum að sér. Það þyrfti að sprauta honum í æð eða eitthvað til að fá 100% af efnunum í sig.

Re: Hvað er að þessari síðu?

í Hugi fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Já það er satt. Væri miklu betra ef það kæmi bara tilkynning um að þræðinum hefði verið eytt.

Re: Reykingar unglinga í íslensku samfélagi

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Var ég að segja eitthvað annað?

Re: Reykingar unglinga í íslensku samfélagi

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Hvað veist þú um það? Þú veist nefnilega ekki neitt. Þú veist ekkert hvort ég sé asnaleg eða full af sjálfsmorðshugleiðingum. Ekki segja svona hluti við mig, mér líkar það ekki. Sérstaklega þar sem þú veist ekkert um hvað þú ert að tala.

Re: Reykingar unglinga í íslensku samfélagi

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Minntist ég eitthvað á að vera töff? Eða á að drepa mig? Þetta snýst ekkert um það. Reykingar hjálpa mér að halda geðheilsunni. Nikótínið róar mig niður þegar ég er stressuð, og lætur mér líða betur þegar allt er í veseni. Ef ég þarf að velja á milli þess að líða betur andlega, og þess að eiga mögulega von á líkamlegum heilsubrestum seinna á ævinni, ja, þá vel ég það fyrra.

Re: Sumt fólk..

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Kannast við þetta því miður, var svo heppin að fá vinnu á kassa í sumar. Sumt fólk kom í búðina oft á dag, í ENGUM öðrum tilgangi en að vera með leiðindi. Það ákveður bara áður en það kemur “Ég ætla að vera ógeðslega illgjarn við unglingana sem vinna á kassanum” og stundum fór maður næstum því að gráta afþví þau voru svo vond :(

Re: Hvað er að þessari síðu?

í Hugi fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Athugið Hér er hægt að fá hjálp, ræða hugmyndir og annað um vefinn hugi.is. Almennar umræður sem snerta ekki Huga eiga því betur heima á öðrum áhugamálum, t.d. www.hugi.is/tilveran. -Stjórnendur áhugamálsins Þetta stendur í boxi fyrir neðan korkana þegar þú ferð inn á áhugamálið. Bara fylgjast betur með næst :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok