Vá hvað ég er pirraður útí pabba minn núna.

Ég keypi mér kippu af jólaöli í Krónunni því ég elska Jólaöl, þetta bláa :) Og ætlaði að vera geðveikt epic og hafa þær allar útí glugga tómar eftir að ég væri búinn að drekka þær, og var búinn að drekka 4 [á einum og hálfum sólarhring, róleg].

Og var kominn með þær útí gluggasillu, geðveikt pro. Og svo pantaði ég mér pizzu því mamma mín né pabbi minn voru heima um kvöldmatarleytið, og ég borðaði 2 sneiðar, og nokkrir vinir mínir fengi 3 held ég til samans, þannig það voru 3 sneiðar eftir, sem ég ætlaði að geyma þangað til eftirá.

Ég var að flýta mér og var frekar stressaður og létt-pirraður útaf því ég þurfti að flýta mér, borða, ætlaði í sturtu en enginn tími.

Þannig ég loka pizzu kassanum, og geng frá diskunum og glösunum og læsi og hleyp út með vinum mínum til að ná strætó.

Og já, myndin Borat er gull. Mæli með henni.

En svo eftir myndina, þegar ég er búinn að vera eitthvað úti með félögunum þá er enginn pizza, engar brauðstangir, ekkert inní ísskáp = einhver borðaði þetta, og þar sem mamma borðar ekki pantaði pizzu þá var það pabbi.

Ég náttúrulega var smá svangur eftir 4 tíma sprell og ekkert nema nammi og ógeð þannig ég verð smá pirraður því ég ætlaði að geyma þetta til að snæða seinna um kvöldiiiiiiiiið.
Svo kem ég niður í herbergið mitt, ER ÞÁ EKKI BÚIÐ AÐ TAKA ALLAR DÓSIRNAR ÚR GLUGGASILLUNNI, KRUMPA ÞÆR, OG HENDA ÞEIM Í PLASTPOKA SEM Á AÐ FARA Á SORPU, F*CK!

Þannig ég fer yfir í m&p herbergi og mamma var bara vakandi og segir bara: “Já pabbi þinn gerði þetta, mímímí, ekki vera fúll mímímí”

OHHH DJÖFULLINN ég pirraðist ekkert smá.

Nöldur er nöldur. Það er hægt að pirrast útaf öllu, og ég pirraðist yfir þessu, svo ef þú ætlar að koma með eitthvað: “Vá ertu aumingi að pirrast yfir pizzu og jólaöli” þá geturu étið skít elskan ;*
stjórnandi á /bretti, /vetraríþróttum og /heimilið