Ég hata Dr. Phil. Hann þykist alltaf vita allt best og síðan er hann bara asnalegur. Ef einhver hjón eru að rífast segir hann bara: “Hættið að rífast” og það á bara að bjarga hjónabandinu. Svo var einhver gaur sem var geðveikt skemmdur andlega og félagslega eftir ömurlega æsku, og hvernig reddaði doktorinn því? Jújú hann gaf gaurnum bara pening, bíl og skólastyrk. Líka var einhver stelpa að drepast úr offitu, auðvitað reddaði Dr. Phil málunum bara með því að segja henni að fara í megrun....