Hér er sma ritun sem eg gerði um Che í leiðindakasti sem eg fékk… Che Guevara, eða Ernesto „Che” Guevara de la Serna, fæddist 14. júní 1928 í bænum Rosario í Argentínu. Árið 1953 útskrifaðist hann í læknisfræði við Háskólann í Buenos Aires. Hann var sannfærður um að bylting væri eina leiðin til að bæta þann félagslega ójöfnuð sem hann taldi ríkja í Suður-Ameríku. Að námi loknu fór Che til Guatemala. Þá var hann orðinn mikill marxisti en var mjög fátækur. Hann bjó með konu sem hét Hilda Gadea...