Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

myndavel
myndavel Notandi síðan fyrir 15 árum, 6 mánuðum 33 ára kvenmaður
256 stig
Hello, is there anybody in there?

Ginger! (35 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Haha. Er fólk virkilega að taka þessu svona alvarlega (þá er ég bæði að tala um börnin og skólann)? http://pressan.is/Frettir/LesaFrett/skolastjori-hefur-ahyggjur-af-ofbeldi-gegn-raudhaerdum—foreldrar-varadir-vid-brefleidis Ég verð nú að segja að þessi dagur er ekki beint eitthvað sem maður hefur áhyggjur af, þetta er meira eitthvað til að hlæja að :) Endilega segið ykkar skoðun á þessu :)

Frítt jólalag (2 álit)

í Músík almennt fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Halló :) Langaði bara að deila þessu með ykkur, hér er hægt að downloada “nýja” jólalaginu með Hvanndalsbræðrum, Í Betlehem er barn oss fætt. Mér finnst þetta alveg frábær útgáfa af laginu, og það er bara frítt í nokkra daga svo endilega nýtið ykkur það =) http://www.tonlist.is/MusicNews/771/fritt_hvanndalsbraedur_-_i_betlehem_er_barn_oss_faett/

Smá ábending. (4 álit)

í Hátíðir fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Hæ þú! :) Mig langaði bara að benda þér á það, að nú koma jólin í næsta mánuði :D Bætt við 2. nóvember 2009 - 16:21 Og svona í tilefni þess, er hér eitt ofur jólalag :D http://www.youtube.com/watch?v=_-3JF9jnRdU

Lokatilraun... (23 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 6 mánuðum
Hæhæ :) Jæja annað hvort skoðar enginn /tonlist og /taekni ..eða enginn hérna veit svarið sem mig vantar. Vonandi að það virki að posta þessu hérna á mjög virku áhugamáli… Annars, sorry ef þú ert að lesa þetta í 3. skiptið :P Ég semsagt er með fullt af lögum sem ég downloadaði í BearShare, en kann ekki að fá þau inn í itunes. Hef gert það áður, en hef ekki hugmynd um hvernig mér tókst það, það var eiginlega óvart. Er einhver hérna sniðugri en ég? :) Takktakk =)

BearShare (0 álit)

í Tölvur og tækni (gamla) fyrir 14 árum, 6 mánuðum
Halló :) Enginn á áhugamálinu /tonlist hefur hjálpað mér svo mér datt í hug að senda þetta hingað. Veit einhver hvernig ég get fengið lög sem ég downloadaði í BearShare, inn í itunes?? Er með stórt BearShare library en vill fá lögin inn á ipodinn minn… Takk =)

Smá hjálp... (6 álit)

í Músík almennt fyrir 14 árum, 6 mánuðum
Hæhæ :) Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver gæti hjálpað mér… Málið er að ég á fullt af lögum í BearShare, en vil fá þau í itunes. Er það hægt? Og ef svo er, hvernig fer ég að því? Hef gert það áður en hef bara ekki hugmynd um það hvernig ég fór að því… Takk =)

Schumacher keppir ekki! (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 14 árum, 7 mánuðum
http://www.mbl.is/mm/sport/formula/2009/08/11/schumacher_keppir_ekki/ Svolítið gamlar fréttir, betra seint en aldrei ;)

Berja og kókos smoothie (2 álit)

í Matargerð fyrir 14 árum, 8 mánuðum
Ég hef verið að prófa mig áfram með allskonar “skyndibita”, þetta finnst mér einna best. Snilld þegar maður kemur svangur heim og langar í eitthvað gott :) - Ca. 3 dl. af frosnum berjum (ég nota yfirleitt blönduð skógarber) - 1 lítil dós af kókosmjólk - Möndluflögur, 1/2 - 1 dl. (þarf ekki, þær gera þetta aðeins matarmeira) Blandað vel saman í blandara. Úr verður þetta fína smoothie :) Svo er hægt að breyta eins og maður vill, t.d. bæta við banana eða ávaxtasafa, hnetum eða kókosmjöli.

Nordplus (0 álit)

í Skóli fyrir 14 árum, 9 mánuðum
Halló =) Ég var að spá, er einhver hérna sem hefur reynslu af Nordplus? Er alvarlega að spá í að fara til Noregs með Nordplus. Sögur, anyone? =) Takktakk.

Leonard Cohen - Ain't No Cure For Love (1 álit)

í Rómantík fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Svo fallegt lag, og textinn.. =) I loved you for a long, long time, I know this love is real It don't matter how it all went wrong, that don't change the way I feel And I can't believe that time's gonna heal this wound I'm speaking of There ain't no cure, there ain't no cure, there ain't no cure for love I'm aching for you baby, I can't pretend I'm not I need to see you naked in your body and your thought I've got you like a habit and I'll never get enough There ain't no cure, there ain't no...

Mjólkurleysi (1 álit)

í Matargerð fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Halló =) Mér datt í hug að senda þetta inn hér. Ég á víst að borða mjólkurlausa fæðu næstu vikurnar og mér líst ekkert á það! :S Ég hef nánast sleppt því að borða síðustu daga því mig langar aldrei í neitt sem ég má borða. Og svo nenni ég ekki að hafa fyrir því að redda einhverju sem er ekki með mjólk.. Þetta er ekkert mál með kvöldmatinn, en maður þarf víst meira en það… Ég er alveg í vandræðum því ég hef alltaf borðað svo mikinn mjólkurmat.. Ostur er nánast eina áleggið sem ég borða....

Hvenær? (39 álit)

í Hljóðfæri fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Samkvæmt könnuninni hér á /hljóðfæri, sér rúmlega helmingur ykkar/okkar eftir því að hafa ekki byrjað að spila fyrr á hljóðfæri. Þá spyr ég: hvenær byrjaðir þú að spila, og finnst þér það hafa verið of seint? Persónulega byrjaði ég að spila 13 ára og hefði alveg verið til í að byrja fyrr. Er samt hrædd um að ef ég hefði byrjað fyrr, þá hefði eitthvað annað en bassi orðið fyrir valinu :P

Útskriftarkjóll (6 álit)

í Tíska & útlit fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Hæhæ =) Nú fer að líða að útskrift hjá mér oog mig vantar útskriftarkjól. Bý á Akureyri og er ekkert á leiðinni suður fyrir útskrift, veit einhver um búð á netinu (t.d. myspace) sem selur flotta kjóla? Takktakk =)

Tímabilið (4 álit)

í Formúla 1 fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Jæja er ekki löngu kominn tími á smá umræður hér? =) Nú er tímabilið komið af stað og 4 keppnir búnar af 17. Hvernig leggst tímabilið í ykkur? Nú hefur Brawn liðið komið ótrúlega sterkt inn, haldið þið að þessi velgengni þeirra muni halda áfram? Einnig kemur slakt gengi “stóru” liðanna McLaren og Ferrari mér mjög á óvart. Látið nú reyna á spádómshæfileika ykkar, kæru F1 áhugamenn! Munu stóru liðin ná sér á strik? Er velgengni Brawn, Red Bull og Toyota bara tímabundin? Og síðast en ekki síst:...

Myndbönd (3 álit)

í Formúla 1 fyrir 15 árum
Jæja. Nú fer formúlan að byrja aftur og ég verð að segja að ég er orðin nokkuð spennt =) Þótt ég hafi ekki fylgst nógu mikið með síðustu ca 2 árin vegna vinnu, ætla ég að taka mig á núna og reyna að fylgjast betur með. Ég er búin að vera að horfa á gömul formúlu myndbönd, og sé hvað formúlan hefur látið á sjá síðustu árin, að mínu mati allavega. Ég byrjaði að horfa á formúluna 1998 og missti ekki af einni einustu keppni í um 7 ár :P En síðan þá hefur áhuginn minnkað. Þessi gömlu myndbönd...

Besta myndbandið (4 álit)

í Formúla 1 fyrir 15 árum
http://www.youtube.com/watch?v=vKU90BSHqHk&mode=related&search= Ég elska þetta! :D

Top 10 (7 álit)

í Rokk fyrir 15 árum
Ef þið ættuð að seta saman playlista með u.þ.b. 10 uppáhalds lögum, hvernig væri hann hjá ykkur? =) Ég á erfitt með að svara þessu sjálf en sennilega yrði hann eitthvað á þessa leið: - Don't Cry - Guns N' Roses - Famous Last Words - My Chemical Romance - Boulevard of Broken Dreams - Green Day - Comfortably Numb - Pink Floyd - Ormurin Langi - Týr - Stairway to Heaven - Led Zeppelin - Michael - Bedlight for Blue Eyes - Good Old Fashioned Lover Boy - Queen - Dear God - Avenged Sevenfold - The...

Smá spurning (12 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 1 mánuði
Hefur einhver hérna reynslu af því að vinna í sumarbúðum? Hvernig var?

Bítlarnir vs. Stones (26 álit)

í Rokk fyrir 15 árum, 1 mánuði
Hvað segiði, The Beatles eða The Rolling Stones? Persónulega segi ég Stones.

Uppáhalds...? (21 álit)

í Rokk fyrir 15 árum, 1 mánuði
Það var verið að tala um dauða þessa áhugamáls. Mér finnst “Rokk” áhugamál alveg klárlega eiga skilið að vera sprell lifandi. Þá verður maður víst að senda inn efni. Svo ég spyr hvað/hver er uppáhalds: - Hljómsveitin? - Gítarleikarinn? - Diskurinn? =)

Sléttujárn (21 álit)

í Tíska & útlit fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Hallóhalló =) Ég vað að spá…sléttujárnið mitt er að syngja sitt síðasta, enda ekki alveg nýtt (fékk ég það í fermingargjöf 2004 :P ) En þar sem ég hef alveg roosalega lítið vit á svona löguðu langaði mig að spyrja hvort það séu einhver ákveðin sléttujárn betri en önnur? Danke =)

2008 (39 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Biðst fyrirfram afsökunar ef það er nú þegar búið að gera svona þráð :P En já, mér leiðist og ég hef ekkert að gera…er þá ekki tilvalið að gera eins og einn þráð á Huga?? =) Nú er árið að klárast… - Hvað stendur uppúr á árinu 2008? ooog - Áramótaheiti? Og til að ég svari nú mínum eigin spurningum þáá stóð sumarið eiginlega bara uppúr. Fór nokkrum sinnum til útlanda, m.a. í frábæra útskriftarferð, spilaði á frábærri tónlistarhátíð og bara…had the time of my life :D Ég hinsvegar nenni ekki að...

Gyros? (0 álit)

í Matargerð fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Hallóó =) Ég fór til Rhodos í haust og kolféll fyrir grískri matargerð, keypti mér m.a. kryddblöndu til að nota á gyros (grískur kjötréttur, svipað og kebab nema mikið betra…skorið í litla bita og steikt á pönnu). En þar sem maður fer nú ekki til Grikklands á hverjum degi…veit einhver hvernig krydd maður getur notað í staðin fyrir svona kryddblöndu?

Ógeðslegu bílasalar! (45 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Pirr Pirr Pirr Váá í hádeginu í dag fór ég með bíl uppá Toyota bílasöluna á Akureyri. Það voru einhverjir kallar sem ætluðu að skoða hann en pabbi komst ekki með hann svo ég fór bara. Þegar ég kom byrjuðu þeir að spyrja hver annan hvaða árgerð bíllinn væri. Ég sagði þeim að hann sé '92. Svo flettu þeir uppá því, datt ekki í hug að hlusta á mig. Þeir skoða bílinn eitthvað, það eru útlendingar sem eru að spá í að kaupa hann. En þessir ógeðslegu íslensku menn sem ég var að tala við virtust ekki...

Chinese Democracy (7 álit)

í Rokk fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Jæja þá er biðin á enda… Fjölmiðlarnir segja þetta vera fyrsta disk hljómsveitarinnar síðan The Spagetthi Incident kom út en ég verð að segja að mér finnst þetta einfaldlega vera fyrsta plata hljómsveitarinnar. Ég tel New GNR ekki sem sömu hljómsveit og the real Guns N' Roses. Fyrir mér er ekkert Guns N' Roses án Slash og Duff. Ég hef hlustað á þetta hér (væri búin að kaupa hann en er búin að lofa að gera það ekki…fæ hann í jólagjöf :P )...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok