Margir góðir punktar þarna, en að draga úr styrkjum til bænda væri hrikalegt! Ef íslenskur landbúnaður legðist niður myndi fast öll íslensk matvælaframleiðsla leggjast niður og í þokkabót ykist atvinnuleysi umtalsvert. Landsbyggðinni myndi blæða allsvakalega. Það væri heimskuleg afturför. Rökin með bóndann og IKEA ganga engan veginn upp. Með því að draga úr styrkjum til bænda væri verið að leggja niður nánast alla bændastéttina og aðrar stéttir í leiðinni. Lengi lifi íslenskur landbúnaður!