Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

mundalitla
mundalitla Notandi síðan fyrir 21 árum, 10 mánuðum Kvenmaður
256 stig
Nafli er lok fyrir ástand í alheimsvanda, úti sem og Gabríel…

Re: Ert....

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hehehehehehehe… Ég er reyndar ekki sú týpa sem að gerir svoleiðis. Ég verð þá að losa mig við tvær litlar systur, tvo hunda og þrjá ketti. Svo ekki sé talað um að reka bróðir minn út líka. Þetta gæti orðið heljarinnar vesen sko, að halda partý það er að segja. Þótt það væri sennilega gaman halda smá partý ;). Ég verð örugglega bara heima að passa ef ég reikna þetta dæmi rétt út ;).

Re: Ert....

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Búin með allt nema mömmu og pabba. Ætli ég bjóði þeim ekki bara út að borða :P. Þau fara tvö út að borða og ég borga :).

Re: HAHA!!!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Tek undir það hjá þér :D. Geðveikt að sjá stráka loksins dansa nakta :D! Hahahahahahaha ;).

Re: Sængurver hugara!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég er alltaf með tvær sængur uppí hjá mér. Enda á ég ógeðslega stórt rúm. Ég er með blátt utanum aðra sængina og rautt á hinni sænginni. Annars er ég oftast með paddington (held það sé skrifað svona) og Garfield. :)

Re: Kinkytest :P

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
201 to 300 You have sweet hints of a kinky nature. Yes that's me! :P

Re: Happy!!!!!!!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég kláraði prófin 5. des og er búin að vera í jólafríi síðan þá.

Re: smá könnun

í Rómantík fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nei, langt því frá! =D

Re: Börn

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Mig dreymir stundum að ég eigi lítinn strák. Í draymunum heitir hann Kristófer Agnar Þorsteinsson. Ég veit nú samt ekki hvort að eitthvað verður úr þessum nöfnum hjá mér. Annars er ég sammála því sem einhver sagði hérna fyrir ofan að nefna barnið eftir að maður sér það. Kannski eiga börnin okkar sér nafn sem maður sér þegar að maður lítur barnið fyrst augum.

Re: weehee!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég var búin á mánudaginn seinasta. Komin í jólafrí þá ;).

Re: Þværð.......

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já, auðvitað þæ ég á mér heldurnar þegar að ég er búin á klósettinu. Ég geri það alltaf. Ég er stelpa.

Re: fallegasta lag....

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þetta er svona það minnsta sem ég gat sagt. Þótt það séu mjög mörg lög sem að ég hefði viljað skrifa hérna líka, en ég ákvað að þetta væri svosem nóg. May it Be – Enya Tuesday’s gone – Lynyrd SkynyrdSad Lisa og I Love my Dog – Cat Stevens Tears in Heaven – Eric Clapton Dream Theater - Through Her Eyes Never Let Go, Caruso og Remember when it Raind – Josh Groban Dust In The Wind – Kansas Bridge Over Troubled Water – Simon & Garfunkel Bother – Stone Sour Söknuður og Þú átt mig ein – Vilhjálmur...

Re: Flott auglýsing!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Einmitt :).

Re: Flott auglýsing!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það var líka ein svona auglýsing hérna á Akureyri. Nema hvað að á henni stóð Rauðu Raf Bassinn eða eitthvað þannig og ég varð frekar hissa og tók spóluna upp og þá stóð einmitt það sama. "Þessi spóla er ekki til… skiptu frekar yfir í Ogvodafone. Mér finnst þetta geðveikt flott auglýsing, en ekkert fær mig til að skipta yfir í Ogvodafone. Held mig í símanum :).

Re: Hvaða lag??

í Músík almennt fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Fann það!! Var að leita að lagi sem að heitir Crush með Garbage :D. Geðveikt flott lag.

Re: Kattarnöfn?

í Kettir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Minn köttur heitir Tímon og köttur systra minna heitir Ívan. Þeir eru báðir hreinræktaðir persar. Af Eðal Loga Tímon heitir minn og hinn heitir Silkikisa Golden Line og kallaður Ívan. Smá einkahúmor í gangi og er Tímon stundum kallaður Tímon Stímon þú getur bara labbað og Ívan mjög oft kallaður hlúnkur eða Ívan Dívan.

Re: *Nöfn*

í Rómantík fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Mér hefur alltaf fundist Arnar vera “kærastalegt” nafn. Annars er ég bara mjög sátt við nafnið á kærastanum mínum. Ég vil samt ekki að kærastinn minn heiti Arnar en það er eitthvað sem heillar mig við þetta nafn.

Re: Fólk sem heldur að það viti betur!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég hef lent í því. Ég er reyndar með stráknum sem að ég átti að hafa verið með núna. Allir að segja og spurja eitthvað útí samband okkar. Svo einn góðann veður dag þá byrjuðum við saman. Núna eru að ganga sögur um að við séum hætt saman. Skondið.

Re: Veikindi

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já, ég er að fara til læknis útaf þessu. Bólgan er einmitt bara öðru megin og ég heyri geðveikt mikið suð í eyrunum og eitthvað bull og vesen. Hvað var þetta lengi að ganga yfir hjá þér?

Re: Veikindi

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég varð einmitt veik núna á föstudaginn. Ég hafði verið með einhvern smá verk í hálsinum um nóttina en ég lét það ekkert trufla mig. Ég fór að passa seinna um kvöldið og þá fékk ég þennann gífurlega hita og gat ekkert gert. Ég lá bara fyrir og beið eftir því að annað hvort ég yrði betri eða konan kæmi heim. Ég var svo orðin fín þegar að konan kom heim. Allt nema hálsbólgan og verkir í fótunum (sem eru búnir að vera lengi). Á laugardaginn fékk ég hita og hausverk, illt í maganum og eyrunum,...

Re: Kattarleikföng

í Kettir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Högnanum mínum finnst agalega gaman að hlaupa á eftir leysernum sem ég fékk á spáni. Venjulegur leyser, rauður punktur sem kötturinn eltir af mikilli ánægju. Hinsvegar er högninn sem að systur mínar eiga mikið meira fyrir plast bandið sitt. Hann leikur sér að engu öðru en þessu bandi sínu. Gaman að sjá hann svona geðveikt feitann og loðinn hlaupa á eftir bandi =P.

Re: Fyrsti kossinn

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Hehehehehe… Já, ætli það ekki. Ég reyndar var með þessum strák í tvö ár og svo átti ég ekki kærasta fyrr en ég varð 16 ára. Ég hef bara átt tvo kærasta sem að ég gerði eitthvað með og ég elskaði. Það var þessi strákur sem að ég kyssti fyrst, við vorum saman í tvö ár og fysta árið vorum við aldrei saman þótt við værum “saman”. Seinna árið var ég farin að sjá hann í allt öðru ljósi. Þannig að ég er ekki nálægt því að vera vændiskona ;).

Re: Fyrsti kossinn

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég var í leik sem að heitir sannleikur, prósent, kontor og mana þegar að ég kyssti fyrst með tungunni. Ég var mönuð af “kærastanum mínum” til að kyssa hann í eina mínútu með tungunni. Auðvitað lét ég ekki hlægja að mér og guggnaði heldur kyssti ég hann í eina og hálfa mínútu því að ég vildi vera flottari en allir hinir. Auðvitað var ég lang vinsælust af þessu fólki þarna. Hehehehehe… Já, ég vil einnig koma því á framfæri að ég var 10 ára þegar að þetta átti sér stað.

Re: Að kippast við í svefni?

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já, þetta kemur stundum fyrir mig en ég er ekki sofnuð þegar að þetta gerist. Ég fæ allt í einu bara svona kipp og ræð ekkert við hann. Eins með hljóðin sem að ég gef frá mér þegar ég er alveg að sofna. Það reyndar gerist ekki oft en þegar að það gerist vakna ég almennilega og hlæ og hlæ. Svo asnalegt að vita ekki af þessu fyrr en maður er búinn að gera þetta. Geðveikt böggandi samt.

Re: Got

í Kettir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það var nú gaman. Ekki eins og flest allar læður eignist kettlinga eeen… Voru þeir ekki allir heilbrygðir og hraustir? :)

Re: Afmæli

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Geggjað :).
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok