Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

mundalitla
mundalitla Notandi síðan fyrir 21 árum, 10 mánuðum Kvenmaður
256 stig
Nafli er lok fyrir ástand í alheimsvanda, úti sem og Gabríel…

Re: Hvað heitir teiknimyndin?

í Teiknimyndir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Veit ekki hver hann er. Var einu sinni vinur minn en ég þekki hann ekki lengur. Ég man ekki einu sinni hvað hann heitir.

Re: Hvað heitir teiknimyndin?

í Teiknimyndir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Einmitt það sem að ég hélt að fólk myndi segja.

Re: Hvernin kétti

í Kettir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ég á tvo hreinræktaða perserska ketti. Eða högna réttara sagt. Af Eðal Loga Tímon og Silkikisa Golden Line.

Re: Why oh WHy oh Why??

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Nei, geðveikt. Mér fannst Drekarnir alltaf svo skemmtilegir og Gaulverjarnir einmitt líka. Þess má til gamans geta að ég var með drekum á landsmóti skáta á Akureyri. Hékk samt mikið með Gaulverjum líka. Allt voða sniðgut fólk og skemmtilegt.

Re: Why oh WHy oh Why??

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Í hvaða sveit?

Re: Why oh WHy oh Why??

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ég var einu sinni í skátunum og þá var ég í klakk, á Akureyri. Í sveit sem hét Álfar. En það eru nokkuð mörg ár síðan að ég hætti.

Re: Why oh WHy oh Why??

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Það eru ekkert allir skátar hommar, reyndar hafa allir strákar sem að ég þekki sem voru/eru í skátunum ekki hommar. Meira að segja er hægt að segja að þeir séu flestir sætir og mjög skemmtilegir.

Re: Sacha

í Hundar fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Hey, á þessi hundur ekki heima á Akureyri? Niðri á eyri??

Re: Sacha

í Hundar fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Meinar fallegur ;).

Re: Pæling...

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Þekki annað svona dæmi og þar var strákurinn kallaður Rúnkari, þar sem að hann heitir Rúnar Ari. Fannst öllum þetta geðveikt fyndið og allir kalla hann Rúnkara núna.

Re: Fressar

í Kettir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Afhverju að svara mér?

Re: Lag Bú

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Tomorrow - Spoon Þarf reyndar að læra það utan af og er þá frekar mikið með það á heilanum.

Re: Tölva eða Talva

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Já, ég var bara að grínast í þér. Ég vissi alveg að þetta væri innsláttar villa. Mér fannst þetta bara svo freistandi. ;) Sorry…

Re: Tölva eða Talva

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Þess má til gamans geta að þú skrifaðir “eitthvað” vitlaust. Skrifa þú málið rétt bara.

Re: Hestamenn...

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Afhverju ertu að svara mér við þessu? Ég skrifaði þetta ekki og þá áttu að skrifa þetta við svar hins gaursins/gellunar. Það var ekki ég sem að sagði að hestarnir væru að skíta út um allt og þú ert að segja að ég hafi sagt þetta. Ég er ekkert að kvarta yfir því hvort að hestarnir eru að skíta út um allt eða hvort að þeir eru að fara á kamar. Farð þú aðeins ofar. Ekki svara mér fyrir eitthvað sem að annar skrifaði.

Re: Hestamenn...

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Uuu… Heldur þú virkilega að ég hafi verið að segja þetta? Svaraðu réttu fólki takk. ;)

Re: Hestamenn...

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Í fyrsta lagi er ekki hægt að segja að hestamenn séu allir svona. Ég á tvo hesta og ekki er ég aumingi. Ég er ekki alkóhólisti vegna þess að ég drekk ekki. Ég væli aldrei útaf neinu nema mínu persónulega lífi og það gera það flest allir. Það kemur hestamennskunni ekki neitt við. Þar sem að ég er ekki að eigna mér eitt eða neitt þá vil ég benda á það að ég ríð út þar sem að reiðleiðir eru og er leifilegt að ríða út. Aldrei hef ég röflað útaf neinu í kring um hestana og ég er ekki með typpi....

Re: Hvað langar þig í ???

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Mig langar í: Kort í ræktina. Tónlistarskóla að læra söng. Bílprófið (fæ það eftir þrjá mánuði). Hágæða söngkerfi og nokkra mic-a. Ég held að það sé komið bara, man ekki eftir neinu meira.

Re: Gerð

í Hundar fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Siberian Husky. Hann er lang fallegastur og tignalegastur. Annars finnst mér Amerikan Coker Spaniel hundarnir fallegir líka.

Re: Gerð

í Kettir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Persar finnst mér alltaf fallegastir.

Re: Fressar

í Kettir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Andvirði eins kettlings eða einn kettlingur.

Re: Humm ?

í Rómantík fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég þurfti nú að bíða svolítið eftir mínum strák. Ég hafði séð hann áður og talað við hann og þannig en ég var ekkert hrifin af honum. Ég var meira hrifin af bróðir hans. Hehehehe… Ég kynntist kærastanum mínum svo þegar að ég byrjaði í hljómsveit með honum. Mér fannst hann svo geðveikt sætur og það sem meira var að hann var trommari. Mér finnst eitthvað svo heillandi við trommara. Við vorum búin að vera bestu vinir í rúmlega eitt ár, hann búinn að eiga tvær kærustur og lenti illa í þeirri...

Re: Rifrildi

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Jaaaaaaaaá!! Það er satt. Ég heyri það líka núna.

Re: Rifrildi

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Dinga linga linga ling I was with my girl… Dinga linga linga ling My girl Það heyri ég að minnsta kosti.

Re: Kattarnöfn?

í Kettir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Mæli með Púmba. Kisinn minn heitir einmitt Tímon. Geðveikt krúttlegt. Annars bara…. Tígri Alfons Kattus Nippus (einkahúmor, GEÐVEIKT nafn =P) Hmmm… Man ekkert meira í bili.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok