Jæja, kæru hugarar. Þar sem að mér fannst vera skortur á korkum hef ég ákveðið að búa einn svoleiðis til. Ég ætla að reyna að koma þessum í Heitar Umræður :)

Hér er svo spurningin…

Hvernig lítur sængurverið þitt út?


Mitt er þannig að það er mynd af The Phantom (Linkur á mynd) með úlfinn sinn, hauskúpuhellirinn í baksýn! (Fyrir þá sem ekki vita, þá er hauskúpuhellirinn bækistöð hans, svipað og The Batcave)

En reyndar er það á sænsku og það stendur stórum stöfum efst: “Fantomen!”

Ég vill taka það fram að þetta sængurver er eldgamalt, frá því þegar þessi gaur var uppáhalds ofurhetjan mín.

Annars, svarið spurningunni endilega!
Autobots, roll out.