Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

mundalitla
mundalitla Notandi síðan fyrir 21 árum, 10 mánuðum Kvenmaður
256 stig
Nafli er lok fyrir ástand í alheimsvanda, úti sem og Gabríel…

Re: fugl

í Fuglar fyrir 20 árum, 8 mánuðum
African grey er flottastur. Ég á einn svoleiðis og hann er frábær. Hann er rétt um tvítugt og hermir skemmtilega eftir, segir oft mjá og alltaf eitthvað að herma eftir blístrinu mínu þegar að ég er eitthvað að blístra. Frábær gaukur.

Re: '89 model athugið..

í Tilveran fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ég fer í VMA og byrja núna 23. ágúst.

Re: tattoo ?

í Metall fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ég er með tattoo og ég lét gera það ofan á púlsinn á úlnliðnum á mér og það var als ekkert svo vont. Þetta var meira svona eins og einhver væri að klípa smá í mann annað slagið en annars kítlaði þetta bara. Ég er með kínverskt tákn sem að táknar Faith. Mér fannst það bara standa upp úr öllum tattoo-um sem að ég hef séð og ég fékk það þar að auki í jólagjöf frá mömmu og pabba. Fimmtán ára gömul. Hehehehe, þetta er reyndar bara jurta tattoo en ég ætla að láta fara ofan í það þegar að það fer.

Re: nevolution hita upp fyrir Iron Maiden!!

í Metall fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Já, já…ég er mjög sátt við að þeir séu að fara að spila þarna, kemst nú samt ekki sjálf á þessa tónleika vegna peninga leysis og ekki með bílpróf og síðast en ekki síst leyfir mamma mér aldrei að fara. Hinsvegar er ég mjög stolt af þeim. Var einmitt að koma af góðri æfingu hjá þeim og það var bara mjög flott hjá þeim. Ekki mitt að segja að ég sé einhver grúppía en allavega fíla ég þá í tættlur. Óska þeim bara góðs gengis og skemmtið ykkur ógeðslega vel þeir sem að fara.

Re: Hryllileg meðferð á dýrum

í Tilveran fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Eðlilegt er að skera grísina á háls en þetta finnst mér ekki eðlilegt. Þetta myndband er viðbjóður. Mesti viðbjóður sem að ég hef séð. Eðlilegt er að skjóta dýrin í hausinn og þá deyja þau strax og skera þau síðan á háls og dæla blóðinu svo út þannig. Þetta er bara ekki eðlilegt að maður sé að borða hamborgara úr skepnu sem að er farið með eins og eitthvað villidýr. Beljur eru eitt af bestu dýrum í heimi að mínu mati. Beljur gefa okkur mjólkina með góðu ef að maður sýnir þeim að maður getur...

Re: Blink 182

í Popptónlist fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Seinast þegar að ég vissi voru þeir hættir. Þannig ekki vera að gera þér of miklar vonir um að þeir komi nokkurtímann til Íslands.

Re: Vantar Metal Söngvara á akureyri

í Metall fyrir 21 árum, 1 mánuði
Það er nú ekki mikið um metal söngvara á Akureyri það get ég sagt þér =S. En kannski að þið getið grafið upp einn einhverstaðar =). Gangi ykkur bara vel =.

Re: kisan dáin

í Kettir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
já, þetta semsagt var kisan min. Hún slapp út á gamlárskvöld rétt áður en flugelda dæmið byrjaði en hún kom aftur inn seinna um kvöldið þar sem að hún var rosalega hrædd og flúði undan flugeldunum og inn. Það var mjög gott að vita af henni inni þarna um kvöldið. En nokkrum dögum seinna datt einhverjum nágrönnum minum í hug að sprengja smá upp í viðbót. Ég hleifti Imbu út (kisan hét það) á sama tíma og ég fór út eftir kvöldmat og ég kom svo heim tvem tímum síðar. Þá hafði lögreglan komið með...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok