Já, besta vika ever!

Byrjaði á Miðvikudaginn, þegar ég varð veikur. Fékk hálsbólgu, beinverki og svima.

Það tegist alveg út fram á Föstudaginn, þegar ég á afmæli og er ég þá dreginn út til að sjá Harry potter! (Jej). Ég sem var náttúrulega enþá veikur alveg að drepast þarna.

Síðan í dag, þá virðist sviminn og beinverkirnir hættir, hélt að mér væri að batna, en neeeeeeei! Fjandans hálsbólgan stækkar um sig, hún er kominn upp í góm! Ég get ekki talað, drukkið né etið. Allt útí einhverjum hvítum bólum :/

Svo þarf maður að bryðja einhverjar verkjatöflur sem virðast ekkert ætla að virka. Settur síðan á eitthvað kallað Parkódín Forte, sem er víst vímugjafi ef illa er farið með hann. Nú næ ég ekkert að sofna, get ekki talað og held að ég sé á góðri leið í vímu!

Fjandans veikindi!

Varð að koma þessu frá mér :)