ég mæli allavegana með því að þú forðist Römbluna, sem er einskonar Laugavegur Barcelona, þar eru verðin á uppsprengdu verði fyrir alla túristana, þú finnur nákvæmlega sömu vörur á miklu lærri verði á öðrum stöðum
vissulega er þetta einstaklingsbundið, þetta fer allt eftir því hvað þér finnst betra. mér persónulega finnst hraður sáráuki betri, þá meina ég með að skjóta og búið. ég er nú búin að láta skjóta svona 4 sinnum í nefið á mér, það er ekkert mál :D
skotlokkarnir eru frekar stórir, þú þarft að bíða í svolítinn tíma áður en þú getur skipt um. þetta er ekkert mál, þú verður bara aum í smá tíma, engin svakaleg bólga
það er ekkert svo dýrt að láta sauma á sig jakkaföt, en þegar efniskostnaðurinn bætist við þá verður það töluvert dýrara. ég myndi segja svona frá 30 til 50 þúsund. þá erum við að tala um jakkaföt hvernig sem þú vilt hafa þau og úr hvernig efni sem þú vilt. tilvalið fyrir fólk sem finnur ekki það sem það leitar af í verslununum. get bent ykkur á kick ass klæðskera ef einhver hefur áhuga
vááá, það er það eina sem ég get sagt. þú hefur mikinn hæfileika sem þú greinilega ræktar, persónusköpun þín er gerð af mikilli snilli. þú ert rithöfundur sem ég ætla að fylgjast með í framtíðinni.
þetta er til í mörgum búðum hérna á fróni, ef þú ert að meina bara þetta hvíta dæmi þá held ég að það sé til í clarens merkinu, jafnvel lancomé. en ef þú vilt svona með bæði maskara og þessu hvíta þá eru gosh og flest öll merkin með svona. chekka bara í apótekið
fyrsta ástin er alltaf spes. maður gleymir henni aldrei en það er hægt að komast yfir hana. málið er bara að sætta sig við það liðna, vera ánægður með góðu stundirnar sem maður eyddi með honum/henni og snúa sér að einhverju öðru og betra jafnvel. maður er hálfblindur á allt í ástarsorg, fólk einblínir á þann sem það hefur misst en hugsar ekki útí það að kannski var þetta það besta sem gæti komið fyrir það. þú fékkst þinn tíma með yndislegri manneskju og bara það að hafa upplifað það er...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..