Sælir veri sorparar á þessum yndislega mánudegi.

Ég auglýsi hér með eftir strák sem við vinkona mín kynntumst núna um helgina á Bíldudal (tek fram að það var hátíð þar, fer yfirleitt ekki þangað að djamma) en Kjartan vinnur á Varðskipinu Ægi og vegna miskilnings um brottfaratíma sváfum við yfir okkur og náðum ekki í manninn til að fá fleiri nothæfar upplýsingar um hann. Síðast sást til Kjartans í kringum hálf 4 aðfaranótt sunnudags að spila Buzz í káetunni hans.
Býst alveg ágætlega við því að fá skilaboð frá einhverjum fake útgáfum af Kjartani en það er allt í lagi og er heldur ekkert obsessed með náungann, langar bara að taka einn leik í Buzz eða svo.

Kærar kveðjur
Bollasúpa og *hin-stelpan-sem-á-ekki-account-á-huga-og-finnst-þetta-geðveikt-silly-en-hún-er-gelgja-hvort-sem-er-en-ég-elska-hana-þrátt-fyrir-það*

(P.s. Þetta er ekkert monkeybusiness!)

Bætt við 7. júlí 2007 - 15:32
hah.. ég hitti hann í Kringlunni en vegna þess að stríðnisfulli-forvitni stóribróðir minn var með mér og einhver gaur með honum var ég ekkert að biðja um rematch í buzz.. ég er hálfviti :D

En enn og aftur þá sannaðist þó að Ísland er lítið land og því líður mér aðeins betur, kannski rekst ég á hann í ófeimnara ástandi some day.
Annars má fólk alveg halda áfram að kommenta um hvort það þekki hann, að ég sé hálfviti að auglýsa eftir manneskju á netinu, eða segja mér að það þekki hann ekki :)
Ég bið allavega að heilsa honum og korkurinn sjálfur er enn í gildi ^^ Þekkir þú Kjartan?!?!