Hvað tók það ykkur langan tíma að komast yfir fyrstu ástarsorgina?
Ég HATA hvað þetta tekur langan tíma. Maður heldur að þetta sé komið en svo bara hrynur maður allt í einu, þoli það ekki!!
En já, ég er að klikkast hérna á þessu og ég get eiginlega ekkert gert neitt nema bara bíða, og satt að segja get ég ekki beðið mikið lengur, VERÐ að fara að losna við þessa byrði af mér!!
En svona til þess að ég sjái hvort aðrir hafi verið svona lengi að reyna að komast yfir fyrstu ástarsorgina, hvað voruð þið lengi, ef þið hafið þá komist yfir hana ?
Engin skítköst takk, meika það ekki..