Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

mayday
mayday Notandi frá fornöld 180 stig

Re: Dýralæknarnir á Íslandi

í Hundar fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Þau í Garðabæ eru alveg stórfín.Ég lenti líka í þessu sama með hundinn minn,og tók það líka langan tíma.Sumir hundar eru bara viðkvæmnari en aðrir hundar í þessum málum,og dýralæknarnir í Garðabæ hjálpuðu okkur með þetta leiðinda vesen.

Re: Hvert á skíturinn að fara?!

í Hundar fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Auðvitað eigum við að hafa ruslatunnur eða bara hundaklósett fyrst að við hundaeigendur erum skikkaðir til að þrífa upp eftir hundana okkar.Hvert bæjarfélag á auðvitað að sjá um þetta að þvi að við borgum himinn háa skatta fyrir að halda hund á sumum heimilum landsins,og svo eigum við að fá skítapokana frítt að sjálfsögðu.Svo skil ég ekki IHG.hvað þú ert að segja að þetta sé ekki vandamál,ef að ruslatunnur væru á þessum svæðum þá held ég að það væri hvetjandi fyrir hundaeigendur að þrífa upp...

Re: Má hundurinn koma með ??

í Hundar fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Sammála,auðvitað eigum við að hafa val eins og aðrir í landinu og fá að vera í friði með okkar dásamlegu vinum.

Re: Hvað á ég að gera??

í Hundar fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Ég myndi halda að hún sé þunglynd,blessunin.Tíkur geta fengið hormóna truflanir,þannig að ég myndi fara með hana til dýralæknis sem fyrst.það er hægt að laga þetta.

Re: Má hundurinn koma með ??

í Hundar fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Auðvitað geta íslenskir hundaeigendur verið ábyrgir fyrir hundunum sínum.Það er bara því miður allt of mikið af fólki til sem er alltaf með áreiti útí hundaeigendur og hundanna þeirra.Þetta á ekki að vera neitt vandamál, við eigum að geta verið sýnileg allstaðar,en ekki einhver minnihluta hópur sem á sér enga von.Svo kemur klögumál einhverstaðar úr götunni, og hundaeftirlitið bankar uppá og telur upp klögumálin sem að nágranninn klagaði útaf,aldrei fáum við að vita hvaða nágranni þetta sé,og...

Re: Má hundurinn koma með ??

í Hundar fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Þessu er ég ekki sammála.Hundar sem hafa fengið gott uppeldi og þeim er sinnt vel eru ekki skemmdarvargar það er alveg á hreinu.Eins með þrifnað það er hægt að þrífa eftir hundinn og það gerir maður að sjálfsögðu hvort maður er heima hjá sér eða einhversstaðar annarstaðar.Hundurinn á að fá að fylgja húsbóndanum næstum þvi hvert sem er, því það er liður í umhverfisþjálfun hans,því meira sem hundurinn kynnist umhverfinu því betri og reyndari verður hann í samskiptum við allt og alla.Við eigum...

Re: Má hundurinn koma með ??

í Hundar fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Auðvitað er það óréttlágt.Ég bjó í Þýskalandi í 10 ár og gat farið með hundana mína hvert sem er s.s.í stór moll í lestarnar,á resturanta,og m.a.s.í bankann.Hundar eru velkomnir á flesta staði,enda var þetta dásamlegt líf fyrir þá.Svo komum við heim á klakann, og þeir,eins og allir hundar sem koma til landsins þurftu að fara í Hrísey í 8 vikur, og ætla ég ekki að fara útí þá sálma hér, en ég verð að segja að það er farið illa með hundaeigendur á Íslandi við megum varla sjást á rölti,hvað þá...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok