Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

mayday
mayday Notandi frá fornöld 180 stig

Tapað eða fundið. (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Sæludagar lífs míns. Hvar eru þið.? Hvert fóru þið.? Ég man-þá var himnaríki á jörðu. Afhverju skildu þið mig eina eftir.? Án ykkar er ég munaðarlaus. Eða var það kannski ég sem fór.?

Hundasumarbústaðir. (1 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Eru einhverjir sem leigja út sumarbústaði þar sem hundar eru velkomnir með húsbændum sínum.Gaman væri að fá upplýsingar um það.

1.dagur stríðs. (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 1 mánuði
Dagurinn í dag, er svo grár,blautur, eitthvað svo sorglegur. Himininn grætur,fólkið er dapurt, veit ekki hvað kemur, hvað verður næstu daga, nema stríð.

Einangrun hunda.(Bandaríkjahers). (0 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Sá einhver, eða heyrði einhver, þessa frétt á stöð 2 um daginn,um einangrun hunda,bandaríkjahers innan vallarins,enn ekki í Hrísey eins og allir hundar sem koma til Íslands þurfa að fara í samkv.lögum, sem að íslenska ríkið setti á sínum tíma.Ef að það er eitthvað til í þessari frétt,þá eru þeir þarna hjá Landbúnaðar ráðuneytinu farnir að hleypa sumum inn BAKDYRAMEIGINN.Gaman væri nú að heyra hvað hundaeigendum og fleira fólki finnst um þetta atvik. Kv. Mayday.

Úfið augnablik. (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég horfi út um gluggann minn. Sjávarguðinn heilsar,og ég sé næstum til Evrópu. Hann er svolítið úfinn sem og ég, í morgun,eins og hár mitt. kveðja Mayday.

Ég vil frekar eiga hund. (0 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Eru ekki einhverjir frábærir hundavinir sem eru tilbúnir að taka að sér 10 vikna gamla hvolpa af Bordercollie kyni, ekki alveg hreinræktaðir en yndislegir .Tveir karlhundar Oliver og Nero,ein tík Tinna. Upplýsingar í 8612908.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok