Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Framtíð? (8 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Eitt kvöldið stóð ég við eldhúsvaskinn og vaskaði upp. Ég var djúpt sokkin í uppvaskið þegar ég leit annars hugar út um gluggann og kom auga á unglingsstúlku í nálægum garði. Þar sem ég var nýlega flutt í götuna kannaðist ég lítið við nágrannana. Stúlkan var önnum kafin við að raka saman nýslegnu grasi og tók því ekki eftir að ég var að glápa yfir gardínurnar hjá mér. Hún krafsaði miskunnarlaust í jörðina með hrífunni þar til sást í mold. Annað veifið lagðist hún fram á hrífuskaftið og...

Búrið og fuglinn (6 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 1 mánuði
Búrið og fuglinn Í búrinu situr fuglinn og horfir heiminn á. Það er margt í þessum heimi sem fuglinn ekki má. Sitja hér, standa þar, ekki má neitt hægri snú. Ef þú lítur betur sérðu, að fuglinn það ert þú. Í búrinu ert þú læstur og hvergi kemstu út. Ef þú færð ei frelsi fljótt, þá fer allt í hnút. Þú dokar og bíður en enginn opnar búrið. Þú verður hræddur og lítur ört á úrið. Hvað verður um þig, ef búrið opnast ei? Hvað ef þú biður en allir segja nei? Ætlar þú að doka og bíða, bíða, bíða?...

Hundar innfluttir af hernum þurfa ekki í Hrísey (16 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Hvað finnst ykkur um að hundurinn sem varnarliðið var að flytja inn þarf ekki að fara í sótthví í Hrísey eins og þeir hundar sem við flytjum inn. Er þetta sanngjarnt gagnvart okkur eða hvað? Þetta mál er algjör skandall og við vitum öll að það er ekki bara gefin undanþága vegna þess að hundurinn getur ekki verið án þjálfara síns, án þess að vera grimmur. Ég held að það sé komin tími til að hundaeigendur hætti að láta traðka á hagsmunum sínum. Ég er algjörlega á móti þessari undanþágu nema að...

Hjálp (6 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Kæru hundaeigendur og huindaáhugamenn. Ég heiti Margrét og er nemandi í Borgarholtsskóla. Ég er að læra fjölmiðatækni og er að vinna þemaverkefni tengd hundum. Þemað mitt er hundamenning á íslandi. Ég ætla að fjalla mikið um einangrunarstöðina í hrísey og áhrif hennar á innflutning á hundum. Einnig ætla ég að taka léttari mál fyrir. Ef þú hefur áhuga á að segja mér eitthvað sem þú veist um afleiðingar á dvöld hunds í Hrísey endilega skrifaðu mér póst á margretrun@hotmail.com eða skrifaðu...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok