Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Hvernig (3 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Hvernig Hvernig anda ég ef ekki er loft? Hvernig drekk ég án þess að fá vökva? Hvernig græt ég sjaldan en samt oft? Hvernig á ég án allra lyga að skrökva? Hvernig get ég elskað ef ei er hjarta? Hvers vegna er dagur en samt nótt? Hvernig getur dimm von breyst í bjarta? Ég heyri læti en samt er allt svo hljótt.

Blekking (1 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Blekking Þú ert ömurleg. Þú getur ekki neitt í neinu. Þú ert einskis virði og þú ættir ekki að vera til. Þú þjónar engum tilgangi heldur ert bara fyrir. Ég vildi að þú myndir ekki birtast á móti mér í hvert skipti sem ég lít í spegilinn.

Farinn (2 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Ég grét, þú þurrkaðir tárin. Ég var leið, þú læknaðir sárin. Ég þarfnaðist vinar, þú komst til mín. Ég bað þig að vera, þú gafst mér orð þín. Hvað geri ég nú, er þú ert farinn? Tóm að innan, á hjartanu marin. Ég bið til Guðs að komir þú til mín. Því gleymi ég aldrei, þú gafst mér orð þín.

ÍR-Haukar (0 álit)

í Handbolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Jæja nú eru ÍR-ingar að spila við Hauka í kvöld. Hvernig halda menn að þetta fari? Held að ÍR taki þetta með 2 - 3 mörkum. Áfram ÍR

Þáttur (0 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 1 mánuði
Var að setja inn þáttin sem ég var með á netmiðlinum Bost. Endilega kíkið við http://multimedia.bhs.is:16080/~marein/theme/thattur. html eða á http://multimedia.bhs.is:16080/~marein/theme/ kveðja Magga

Hjálp (1 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hæ var að spá hvort ég gæti fengið smá hjálp frá ykkur. Ég er nefnilega að fara að taka viðtal við Guðna Ágústsson og Þorgerði Katrínu og vantar spurningar. Ég vil helst spurja þau um þessar einangrunarreglur sem eru hérna á Íslandi en svo hef ég hugsað mér að spurja þau eitthvað út í annað. Ef þú hefur einhverjar spurningar fyrir þau, þá endilega sendu mér mail á: hundalif@hotmail.com kveðja Magga _________________ kíkið á heimasíðuna mína http://multimedia.bhs.is:16080/~marein/theme/
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok