Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Led Zeppelin - Led Zeppelin II

í Rokk fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ég meina þetta er fyrsta alminnilega rokkbandið, Dazed and Confuzed er snilld.

Re: Ný plata frá Radiohead!

í Rokk fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Það á víst loksins að koma aftur rafmagnsgítar í þetta hjá þeim, annars finnst mér Radiohead orðnir soldið duglegir að gefa út plötur.

Re: Nokkrir punktar

í Kvikmyndagerð fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Jámm mjög góðir punktar & ég er sammála þér í því að það er virkilega hallærislegt að gera byssu & dópmyndir hér á Íslandi, annars er gaman að sjá fólk hérna sem hefur áhuga á kvikmyndagerð.

Re: Arsene Wenger

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Þess ber líka geta að hann stjórnaði Monaco á móti Val árið 1987 í Evrópukeppninni, Valur vann heima 1-0 á Laugardalsvellinum með sigurmarki frá Atla Eðvalds, en töpuðu í Frakklandi 2-0, George Weah var meðal annars einn af þeim ungu mönnum sem Wenger hafði innan sinna snæra.

Re: Man City

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Það er samt oft stórskemmtilegt að sjá hversu City getur spilað botnlausan bolta enda kemur fyrir að þeim sé refsað, Bernarbia, Anelka, Distin eru helvíti góður & nú er verið að bendla menn eins & Klose við þá en þeir eru stórskemmtilegir, en besta sóknarboltann spila Newcastle, Arsenal & Man Utd.

Re: Landsliðið

í Handbolti fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Hefur Roland ekki spilað heimsklassa bolta, maðurinn hefur spilað með öllum yngri landsliðum Sovétríkjana & orðið rússneskur meistari, á þessum tíma voru nú bara 2 lönd sem stóðu upp það var Svíþjóð & Rússland, hann er einfaldlega í sér klassa & heldur liði Vals algerlega uppi & að mínu mati er hann langbesti markvörður sem spilað hefur á klakanum & án efa einn besti markvörðurinn í heimshandboltanum í dag.

Re: Diskar sem að hafa haft mikil áhrif á mig.

í Metall fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Sumt er fínt en annað t.d HAM er bölvað rusl.

Re: Friends er byrjað aftur !!!

í Gamanþættir fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Skil ekki hvað fólk sér við þessa þætti en ég býst við að meginþorri Íslendinga sé bara orðinn svo gegnumsýrður á þessu Ameríska rusli sem við sjáum í imbanum, þetta er bara ekki fyrir fimm aura fyndið nema fyrir einhverjar gelgjur & pabbastráka sem styðja sjálfstæðisflokkinn.

Re: Sir Bobby Robson

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ótrúlegur maður, akkur í fjandunum var hann látinn víkja í Barcelona eftir að hafa unnið 3 titla & í 2sæti í deildinni & láta Lúðvík hinn Galna taka við.

Re: 10 Tilnefndir

í Íþróttir fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ólafur hlýtur að vinna þetta í ár………..

Re: 5 bestu kvikmyndir sem ég hef séð

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Devil's Advocate : en Pacino er alveg svakalegur í þessari annars töff mynd. Trainspotting : eðal Cool Bresk mynd sem maður gleymir ALDREI. Clockwork Orange : þessi mynd er rosaleg góð þótt hún sé með miklu hrottaofbeldi þá er sýnir hún snilld Kubric. Wild at Heart : ég held að Nicolas Cage hafi aldrei verið jafn svalur. Amelie : hjarta manns var fyllt gleði lengi eftir þessa dásamlegu mynd. Leon : myndin sem slík var ekkert svakaleg en hún er frábærlega vel leikinn & Gary Oldman þá...

Re: Coldplay í sínu feitasta formi í laugardalhöll!

í Músík almennt fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Þetta voru öflugir tónleikar enda hefði annað verið vonbrigði þar sem þetta er öflugt band, en hvernig fannst ykkur þessir tónleikar með við tónleikana í fyrra, persónulega fannst mér sjónarspilið & svona umgerðinn betri í gær en þegar maður sá þá í fyrra var þetta ferskara allavega í minnunu en það er ekki kannski skrítið þar sem lögin hafa verið spiluð svo mikið undafarið.Þetta voru með bestu tónleikum sem ég hef séð á landinu en kannski ekki þeir bestu, það voru frábærir...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok