Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Og enn af Anelka (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum
Það væri synd að segja að Gróa á Leiti sé ekki á fullu þegar Nicolas Anelka umræðan er annars vegar. Ekkert nýtt er þar í spilunum og er staðan nákvæmlega svona: Það er fyrir talsverðu síðan búið að semja um kaupverðið á kappanum og samkvæmt ábyggilegum heimildum er það rúmar 12 milljónir punda. Sögur hafa reyndar gengið á víxl um það að hann sé búinn að skrifa undir og svo einnig að Anelka sé að fara að spila síðasta leik sinn fyrir Liverpool á morgun og að Freddie Kanoute sé á leið til...

"Sami á eftir að vera frábær fyrirliði" (22 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum
Phil Thompson segir að Sami Hyypia hafi verið sá eini rétti til að taka við fyrirliðastöðunni eftir að Jamie Redknapp fór frá félaginu og lét þar af leiðandi eftir fyrirliðatignina. Hyypia ætti þó að þekkja aðeins til bandsins, eftir að hafa verið fyrirliði liðsins inná vellinum meirihlutann af tímabilinu. Thompson býst við að Finninn risavaxni eigi eftir að eflast enn meira vegna þess trausts sem fylgir því að vera fyrirliði liðsins númer eitt, hvort sem það er utan eða innan vallar. “Sami...

McAllister líklega á leið til Coventry (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum
Yfirgnæfandi líkur eru á því að Gary McAllister verði útnefndur næsti framkvæmdastjóri Coventry á næstu dögum. Roland Nilsson, sem gegndi þessu starfi, var rekinn í síðustu viku og er McAllister talinn langlíklegasti arftaki hans. “Ég hef verið stöðugt í símanum til að reyna að koma hlutunum í gang. Ég viðurkenni það að sem nýr framkvæmdastjóri mun ég þurfa réttu hjálpina. Ég vil því að vissir hlutir séu eins og þeir eigi að vera og síðan byggjum við á því,” sagði McAllister við skoska...

Það styttist í met (11 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum
Það styttist í enn eitt metið hjá Michael Owen. Fyrirliði enska landsliðsins skoraði sitt fimmtánda landsliðsmark gegn Paragvæ á Anfield Road á miðvikudagskvöldið. Mörkin fimmtán hefur hann skorað í aðeins 34 leikjum. Roger Hunt á markamet enskra landsliðsmanna hjá Liverpool. Sir Roger, stuðningsmenn Liverpool öðluðu hann, skoraði átján landsliðsmörk í 34 landsleikjum sínum. Hann á því betra skorhlutfall en Michael. Roger varð heimsmeistari með enskum 1966. Michael á eftir að leika það...

Redknapp og salan á honum (8 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum
Jamie Redknapp skýrði Chris Bascombe frá öllu í sambandi við brotthvarf hans frá félaginu og hann sagði þetta vera erfiðustu ákvörðun lífs síns. Hann neitaði samningi við Liverpool sem átti að verða til eins árs í viðbót, til að geta byrjað uppá nýtt með Tottenham. Hann talar einnig um það það sé léttir fyrir sig að geta ekki spilað gegn Liverpool þegar þeir heimsækja White Hart Lane fljótlega. Hann verður ekki löglegur með Tottenham fyrr en á næsta tímabili. “Þau 11 ár sem ég hef verið hjá...

Órói í kringum Riise (15 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum
Það er ekki gott að segja hvað vakir fyrir Einari Baardsen, umboðsmanni John Arne Riise, þessa dagana. Hann hefur gert það opinbert að hann hafi verið í sambandi við tvö félög á Spáni vegna piltsins og eru þau talin vera Real Madrid og Barcelona. Baardsen segir að áhugi fyrir pilti hafi vaxið mikið síðan hann var keyptur til Liverpool fyrir 4,5 milljónir punda síðasta sumar. Baardsen: “Tvö topplið í Evrópu hafa verið í sambandi við mig út af John Arne Riise. Annað þeirra hafði samband við...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok