McAllister líklega á leið til Coventry Yfirgnæfandi líkur eru á því að Gary McAllister verði útnefndur næsti framkvæmdastjóri Coventry á næstu dögum. Roland Nilsson, sem gegndi þessu starfi, var rekinn í síðustu viku og er McAllister talinn langlíklegasti arftaki hans.

“Ég hef verið stöðugt í símanum til að reyna að koma hlutunum í gang. Ég viðurkenni það að sem nýr framkvæmdastjóri mun ég þurfa réttu hjálpina. Ég vil því að vissir hlutir séu eins og þeir eigi að vera og síðan byggjum við á því,” sagði McAllister við skoska blaðið Daily Record.

McAllister lék sem kunnugt er með Coventry í fjögur ár áður en hann gekk til liðs við Liverpool fyrir síðasta tímabil. Hann átti frábært tímabil í fyrra en hefur átt erfiðara uppdráttar það sem af er þessu tímabili.


heimilda
Liverpool.is