…og þannig má lengi áfram halda :) Það er bara endalaust til af bassaleikurum, og þetta er allt mismunandi dýrategundir. Svo gleyma menn oft að hugsa um performans þegar talað er um bassaleikara. John Deacon i Queen leit út eins og hann væri að rifja upp innkaupalistann sinn þegar hann var að spila á Wembley fyrir framan skrilljón manns, á meðan Jason Newstead er búinn að eyðileggja á sér skrokkinn við spilamennsku. En önnur spurning - hver er besti bassaleikarinn á Íslandi? ;) 00