Mamma mín á Dodge Caravan árgerð ‘97. Við fluttum hann inn sjálf frá Kanada. Það eina sem hefur farið í bílnum mér að vitandi er heddpakkning, en ég kenni japönunum um það vegna þess að vélin er japönsk (Mitsubishi 2,4). Þessi bíll hefur þurft að þola ýmislegt og hefur þolað það býsna vel, og er nú ekinn 130.000 km. Svo eigum við Suzuki Vitara, líka árgerð ’97. Það er allt önnur saga með hann, þó við höfum bara átt hann í u.þ.b. þrjá mánuði. Fyrst þurftum við að taka upp ryð í hurðafölsum og...