Avensis 1.8 lítra kostar 2.350.000 en Accord 2ja lítra, 155 hestöfl, kostar 2.270.000. Ég tala nú ekki um með sjálfskiptingu, en þá kostar Avensis 2.520.000 en Accord 2.370.000. Gríðarlegur munur miðað við það að Accordinn er mun kraftmeiri. Svo er hægt að fá Accord Type-S, 190 hestöfl á 2.890.000, sem er ódýrara en 150 hestafla Avensis! Hvað hefur Toyotan fram yfir Honduna sem réttlætir þennan mun?