Ég var búinn að reyna að taka gamla MSN út og fara eftir ýmsum leiðbeiningum bæði héðan og frá Microsoft en það var alltaf eitthvað vesen. T.d. var Outlook Express rosalega lengi að starta sér upp ofl. rugl. Á endanum stillti ég bara tóma steypu í gamla MSN t.d. rugl proxy stillingu og þá hætti hann að fara sjálfkrafa af stað. Það virðist ekki vera til nein góð leið í þessu. Alveg dæmigert Windows rugl.
Já ég er búinn að reyna allt sem mér dettur í hug. Fann þetta hjá Bill G. How to Prevent Windows Messenger from Running on a Windows XP-Based Computer http://support.microsoft.com/default.aspx?scid=kb;en-us;302089 Fór eftir því og jú msn hættir að kveikja á sér en öll forrit eins og t.d. Outlook Express verða þá svo seinvirk að maður gefst upp á þessu. Manni er því nauðugur einn kosturinn að taka þessu eins og hverju öðru hundsbiti :-)
Farðu í Tools í Outlook Express veldu síðan security og taktu hakið úr Do not allow attathments to be saved or …………… Þá ættir þú að geta opnað skrárnar aftur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..