Ég er með WinXP pro löglega útgáfu sem hefur virkað 100 % Ég læt vélina sjálfa sækja update og það hefur virkað hingað til. Nú allt í einu vill hún setja upp “330994: April 2003, Security Update for Outlook Express 6 SP1” ég læt hana installa þessu og allt í fína með það, endurræsi. Næsta dag þegar ég ræsi tölvuna vill hún að ég geri það sama s.s. það er eins og hún setji þetta aldrei upp. Prófaði að sækja þetta og setja upp manual en allt kemur fyrir ekki.
Kannast einhver við þetta ??? það er frekar pirrandi að sjá þetta dag eftir dag. Ég er búinn að reyna að finna eitthvað um þetta en finn ekkert sem vit er í.