Get ekki verið alveg sammála þessu (amk ef þú ert að vísa í thottbot líka með þessu svari, veit ekki hvað upphafsmaður telur með í “co”). Það eru auglýsingalinkar á thottbot sem eru með vírusa/keylogger. Það sem gerist er að allt í einu breytist browserinn, minnkar, og þú færð aðvörun um að þú þurfir að skanna tölvuna því þú sért með vírus. Pop-up gluggi býður þér að velja ok eða cancel við að fara inn á ókeypis vírusskann síðu frá Microsoft, en þú ferð inn á hana hvort sem þú velur cancel...