Ég hef unnið með vatnskælda tölvu… ekkert svo frábært… heldur hitanum á örranum bara stabílum. En ef maður vill fá alvöru kælingu, sem er ekki mjög dýr, þá fær maður sér peltier. Það eru reyndar vankantar á því (sbr. greinar á www.overclockers.com), en þú nærð að frysta örrann, fyrir um 20-30 dollara… ekki slæmt. Ég sendi kannski inn grein við tækifæri þegar ég er búinn að setja peltierinn sem ég var að fá í vélina mína.