Málið er bara það að sama hvaða nick þú felur þig á bakvið þá þekkist þú um leið. Þú virðist ekki geta falið þennan leiðinlega persónuleika þinn sama hvaða nick þú velur þér. Það þarf ekkert ógurlega kláran einstakling til að spotta þig (mér tekst það a.m.k.). Þú þursast alltaf, campar eins og þú sért í úrslitaleiknum á skjálftamóti og þú hefur mjög áberandi stíl þegar þú ert að snipa.
Plús það að þú ert sá eini sem ég veit um sem sér ástæðu til að senda einhver skilaboð í hvert sinn sem þér tekst að fragga QNI mann. “h0h0, LOL etc.” simple pleasures for simple people. Man reyndar eftir að hafa leikið sama leik á þig, sendi “*tíhí*” í hver skipti að ég fraggaði þig. Þegar þér tókst loks að fragga mig þá kom “tíhí this”, sem sýnir bara hvað þú þolir svona illa. Ég læt mér duga að vita hve mikið það fer í taugarnar á þér að láta QNI mann fragga þig. Mér finst bara sætt að við skulum vera svona mikil ógnun við þig að það sé markvert að ná að fragga einn okkar.
Og ég veit ekki um neinn sem finst QNI haga sér illa á serverum, við reynum stundum að raða okkur saman í lið en það gera líka flest klön þegar 2-3 eru komnir inn á servrinn saman. Ef við erum að spila clanmatch og andstæðingur dettur út partar einn strax til að jafna. Og við spilum drengilega, spurðu strákan sem spiluðu sem Vicket á síðasta skjálfta.
Veit ekki til þess að neitt clan sé sérstaklega á móti okkur, lentum reynar í smá rimmu við MBI einusinni en held að það séu no hard feelings þar á ferðinni. Ég held meira að segja að PHD sé ekki illa við okkur, nema að þú talir fyrir hönd PHD í hvert skipti sem þú opnar þinn skítakjaft.
Ef það er einhver sem er að missa orðstír þá ert það þú Scope, þú gerir þig endurtekið að fífli hérna dag eftir dag. Þú mátt þó eiga eitt… þú ert alltaf samkvæmur sjálfum þér, alltaf í gargandi mótsögn við sjálftan þig. Fólk hélt einusinni að þú værir bara skapstór eða eitthvað en nú held ég að fleiri og fleiri séu bara á því að þú sért bölvað fífl eða eigir bara mjög erfitt, nema hvoru tveggja sé. Verst að PHD fær á sig skít frá þér, ég þekki ekki alla þarna en flestir virðast fínir piltar.
En ég býst við að allir þurfi á grýlu að halda, fyrir Scope er það QNI og okkar superb liðsandi. Sættu þig bara við það Scope, QNI en samheldið lið og við spilum til að skemmta okkur. Við tökum inn gott fólk með góðan móral. Láttu okkur bara vera áður en þetta verður of ljótt…
Kwai<BR
Kwai