Ég myndi mæla með ca 50-70 lítrum á hvern fullvaxinn piranha fisk, og það borgar sig alltaf að gera ráð fyrir fullri stærð þegar maður kaupir fiska. Einnig stækka piranha fiskar mjög hratt, þannig að ef maður setur þá í of lítið búr til að byrja með þá geta þeir farið að éta hvorn annan. Þegar maður er kominn með ca. 200 lítra búr, þá sleppa svona 40 lítrar á hvern fisk, s.s. hægt að hafa 4-5 fullvaxna í einu þannig búri, og 10-12 í 400-450lítra búri.