Stundum finnst manni neistinn vera horfinn, en þá þarf maður bara að leita að honum í sortanum. Ef hann hefur verið til staðar, mun hann alltaf vera til staðar. Ef hann hefur ekki verið til staðar þá hefurðu starað á glópagull. Leitaðu áfram, blástu lífi í neistann og þá er hann þinn að horfa á eða horfa frá. Ég hugsa til dæmis alltaf til góðu stundanna hjá mér og konunni ef eitthvað bjátar á í sambandinu, þær vega þyngra en þær slæmu. Gangi þér sem allra best.