Þú ert meira en allt
sem mig dreymdi um

Ég féll fyrir öllu í fari þínu
og þá var strax illt í efni
því þegar ég verð hrifin
þá gengur það aldrei upp
Ég var viss um allan tímann
að þetta myndi klúðrast

Svo fór sem fór

Gekk þetta vel meðan á því stóð
en síðan urðu tímamót
gog breyttist lífið eftir það
fórum við þá okkar leiðir
en ekki hef ég gleymt þér

Söknuðurinn er gífurlegur
ég sé þig aldrei núna
en hugsa um þig stöðugt

Eitt vil ég vita
hvort þú hugsir einhvern tímann um mig
Ég vona það af öllu hjarta

Ég vil sjá andlit þitt
bara einu sinni enn

Rangur tími, sagðir þú
hvað hefði verið réttur tími?
Þetta gæti alveg gengið, eða hvað?

Það er svo sárt að hugsa um
hversu mikill söknuður þetta er
Ég var örugglega ekki nógu góð
fyrir strák eins og þig …
Ég finn til, þess vegna er ég